Skipar nefndir til að styrkja byggðir á Norður- og Austurlandi 4. janúar 2008 13:51 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa tvær nefndir til þess að fjalla um leiðir til að styrkja atvinnulíf og samfélag á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi en þar eru byggðarlög sem eiga undir högg að sækja. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í minnisblaði sem lagt var fram á fundinum kemur fram að annarri nefndinni sé ætlað að fjalla um Norðurland vestra og á hún að skila forsætisráðherra tillögum eigi síðar en í lok mars. Hinni nefndinni er ætlað að fjalla um fámenn byggðarlög á Norðurlandi eystra og Austurlandi sem eiga undir högg að sækja í atvinnulegu tilliti og skila forsætisráðherra tillögum eigi síðar en 1. maí. Nefndunum er meðal annars ætlað að gera tillögur um möguleika á að styrkja menntun og rannsóknir, uppbyggingu iðnaðar og þjónustu og flutning starfa frá höfuðborgarsvæðinu til umræddra svæða. Í hvorri nefnd eiga sæti fimm fulltrúar. Í minnisblaðinu er bent á að sams konar nefnd hafi verið skipuð vegna Vestfjarða í fyrra og ákvað ríkisstjórnin í fyrrasumar að verja um 280 milljónum króna á árunum 2007 og 2008 til verkefna sem var að finna í tillögum þeirrar nefndar. Í tillögum ríkisstjórnarinnar um mótvægisaðgerðir vegna skerðingar aflaheimilda er m.a. tekið undir fleiri tillögur nefndarinnar. Þá er bent á skýrslu Byggðastofnunar og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Hagvöxt landshluta 1998-2005, sem kom út í ágúst 2007. Þar kom fram að hagvöxtur væri mismunandi eftir landshlutum og til að mynda hefði framleiðsla á Norðurlandi vestra minnkað um 1,5 prósent á ári frá 1998 til 2005. Þá væru nokkur fámenn byggðarlög á Norðurlandi eystra og Austurlandi sem ættu undir högg að sækja í atvinnulegu tilliti. „Atvinnu- og búsetuskilyrði í þessum byggðarlögum eru afar veik og hagvöxtur neikvæður. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og fulltrúar sveitarfélaga á Austurlandi hafa farið þess á leit að stjórnvöld aðstoði heimamenn við að leita leiða til að styrkja atvinnulíf á svæðinu," segir í minnisblaðinu.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira