Landsvirkjun Power eins og REI 4. janúar 2008 12:14
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir útrásarfyrirtæki Landsvirkjunar svipað fyrirtæki og REI og að ekki eigi að blanda saman opinberum rekstri við einkarekstur. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er í ítarlegu viðtali við helgarblað DV. Þar er meðal annars farið yfir REI-málið svokallaða sem varð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að aldurtila. Hún segir í viðtalinu að þar og í því eina máli hafi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri og leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borginni, brugðist borgarfulltrúum flokksins. Hún segist ekki líta svo á að borgarfulltrúarnir hafi brugðist Vilhjálmi með því að funda með Geir H. Haarde, formanni flokksins, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur varaformanni um málið án Vilhjálms. Strax eftir fundinn hafi Vilhjálmi verið greint frá fundinum og hafi honum brugðið við tíðindin. Þorbjörg Helga segir sér það lífsins ómögulegt að skilja hvers vegna mál hafi þróast þannig að þau sem stigið hafi á bremsuna í málinu liggi undir ámæli fyrir að standa við sannfæringu sína. Hún segir það sína sannfæringu að það sé rangt að fara út í rekstur á borð við REI sem upphaflega hafi verið stofnað að tilstuðlan Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, núverandi heilbrigðisráðherra. Þá segist hún hafa sömu afstöðu til Landsvirkjunar Power sem sé fyrirtæki af sama toga og REI. Ef farið sé út í slíkan rekstur eigi það að vera á forsendum einkarekstrar en ekki eigi að blanda saman einkarekstri og opinberum rekstri. Hún spyr hvers vegna sjálfstæðismenn eigi að gefa frá sér öll prinsipp bara vegna þess að verið sé að tala um orkuútrás.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Sjá meira