Innlent

Ræktuðu kannabis í íbúð á Akureyri

Lögreglan á Akureyri gerði húsleit seinni partinn í gær vegna gruns um að þar væri ræktað kannabis. Í íbúðinni fundust fimm kannabisplöntur og fimm hitalampar auk annars búnaðar sem notaður var við ræktunina.

Einnig fannst þýfi úr innbroti í veitingahúsið Strikið á Akureyri. Tveir menn á þrítugsaldri voru í íbúðinni og viðurkenndu að standa að ræktuninni. Annar mannanna viðurkenndi innbrot í Strikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×