„Samgönguráðherra og Vegagerðin mega eiga skömm fyrir“ Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 9. apríl 2008 17:02 „
Ef að við hefðum þetta fagfólk sem er á spítölunum okkar hjá Vegagerðinni og samgönguráðuneytinu þá værum við í ágætis málum," segir Björgvin Halldórsson tónlistarmaður. Svala dóttir hans liggur ásamt kærasta sínum og félögum í hljómsveitinni Steed Lord slösuð á spítala eftir harðan árekstur við Vogaafleggjara í morgun. Byrjað var að tvöfalda Reykjanesbrautina árið 2003 en ekkert hefur verið unnið í henni í um fjóra mánuði eftir að verktakinn, Jarðvélar, varð gjaldþrota. Sá hluti verksins sem eftir var, var boðið út í gær og á næstu vikum verður gengið til samninga við tvö félög um að klára verkið. Því á að vera lokið um miðjan október. „Þeir mega eiga skömm fyrir, samgönguráðherra og Vegagerðin. Þeir eiga að finna sér önnur störf og fá fagfólk í þetta," segir Björgvin. „Ég veit ekki hvað þarf að gerast þarna áður en þeir hreinsa upp eftir þessa gjaldþrota menn sem tóku þetta að sér. Ég er reiður yfir þessu." Björgvin segist nánast hafa verið á „autopilot" í dag, eftir að Einar, kærasti Svölu, hringdi í hann frá slysstað í morgun til að segja honum hvað hafði gerst. Björgvin segir sjúkrabíla hafa verið fljóta til og hann hafi beðið eftir þeim á slysadeild. Hann hefur ekki síst samúð með ökumanni hins bílsins, sem þurfti að klippa út úr bíl sínum, og liggur einnig slasaður á sjúkrahúsi. „Við fjölskyldan og allir aðstandendur þökkum bara guði fyrir að ekki fór verr, nógu var það slæmt," segir Björgin. „Þau eru öll rúmföst og undir eftirliti og verða örugglega í nokkra daga en þetta lítur betur út en fyrst á horfði."
Tengdar fréttir Vegagerðin ætlar að aðskilja akreinar á Reykjanesbrautinni Vegagerðin hefur ákveðið að aðskilja akstursstefnur á Reykjanesbrautinni þar sem enn á eftir að tvöfalda. Rauð og hvít gátskilti verða sett upp á allra næstu dögum. þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Mikið hefur verið rætt um slysahættu vegna ónógra merkinga á brautinni í kjölfar þess að Jarðvélar sögðu sig frá verkinu í lok síðasta árs. Síðast í morgun varð alvarlegt umferðarslys á svæðinu. 9. apríl 2008 13:25 Meðlimir Steed Lord á slysadeild eftir harðan árekstur í morgun Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord, Svala Björgvinsdóttir söngkona og bræðurnir Einar, Erling og Eðvarð Egilssynir ásamt föður þeirra Agli Eðvarssyni, upptökustjóra Kastljóssins, voru öll flutt á slysadeild eftir harðan árekstur við Vogaafleggjara á Reykjanesbraut í morgun. 9. apríl 2008 15:47 Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Sjá meira
Vegagerðin ætlar að aðskilja akreinar á Reykjanesbrautinni Vegagerðin hefur ákveðið að aðskilja akstursstefnur á Reykjanesbrautinni þar sem enn á eftir að tvöfalda. Rauð og hvít gátskilti verða sett upp á allra næstu dögum. þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni. Mikið hefur verið rætt um slysahættu vegna ónógra merkinga á brautinni í kjölfar þess að Jarðvélar sögðu sig frá verkinu í lok síðasta árs. Síðast í morgun varð alvarlegt umferðarslys á svæðinu. 9. apríl 2008 13:25
Meðlimir Steed Lord á slysadeild eftir harðan árekstur í morgun Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord, Svala Björgvinsdóttir söngkona og bræðurnir Einar, Erling og Eðvarð Egilssynir ásamt föður þeirra Agli Eðvarssyni, upptökustjóra Kastljóssins, voru öll flutt á slysadeild eftir harðan árekstur við Vogaafleggjara á Reykjanesbraut í morgun. 9. apríl 2008 15:47