Minnir meira á tölur frá Baghdad Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. október 2008 13:19 Þráinn Bertelsson. „
Þetta minnir meira á tölur frá Baghdad en Reykjavík," segir Þráinn Bertelsson, rithöfundur og miðborgarbúi, og rifjar upp að eftir næstsíðustu helgi hafi 13 manns legið í valnum eftir líkamsárásir í umdæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Umræðuefnið er meðal annars könnun ríkislögreglustjóra á reynslu landsmanna af afbrotum og viðhorfi til lögreglunnar en í henni kvaðst þriðjungur svarenda telja sig öruggan í miðborginni að næturlagi um helgar. „Ég get nú ekki ímyndað mér að þeir þekki miðbæinn mjög vel sem telja sig örugga að vera þar á ferli á nóttunni eða um helgar," segir Þráinn. „Ég er ekki mikið á ferli á nóttunni eins og gefur að skilja svo ég er alveg ókunnur því hve mikil nærvera lögreglunnar er hér á nóttunni. Þeir sjást lítið hér á daginn enda er kannski lítið um afbrot á skrifstofutíma. Þá eru stöðumælaverðir aktífastir og greinilega ekkert upp á þá að klaga því hvergi er hægt að leggja hérna án þess að fá á sig sektarmiða," segir hann enn fremur. Samúð með lögreglunni Þráinn segir lögreglulið borgarinnar eiga samúð hans óskipta þegar nærvera þess er umræðuefnið. „Að við skulum telja okkur hafa efni á því, með 13 líkamsárásir um helgar, að vera með 60 sérsveitarmenn á launum við að taka á móti ímynduðum hryðjuverkamönnum og þurfa ekki að ganga vaktir eins og venjulegir lögreglumenn. Af því sést að venjulegir lögreglumenn í miðborg Reykjavíkur eru allt of fáir," segir Þráinn ómyrkur í máli. „Það er furðuleg áhersla hjá dómsmálaráðuneytinu að fylgjast með erlendum hryðjuverkamönnum og innlendum landráðamönnum með greiningardeildum og öryggislögreglu á meðan vandamálið er bara hérna á götunum, fylleríið og eiturlyfjaneyslan," segir hann. Hann bætir því þó við að hann dáist að lögreglunni fyrir að takast þó að halda í horfinu og fámennt lögreglulið vinni þar gott starf. „Mér finnst ástandið hafa batnað að sumu leyti, það er til dæmis gert meira af því núna að framfylgja hávaðatakmörkunum frá veitingastöðum. Svo hefur margt lagast af sjálfu sér út af ástandinu eins og það að Reykjavíkurflugvöllur er ekki lengur notaður að næturlagi sem einkaflugvöllur manna sem skreppa til London að fá sér að éta. En það sýnir náttúrulega bara villimennskuna að það skuli hafa verið vandamál um tíma," segir Þráinn. Fleira skiptir máli en eigin gata Hann telur það ekkert matsatriði að miðbærinn sé hættulegur. Það sanni fréttir svo lengi sem ekki sé verið að skálda þær upp. „Það virðist vera þjóðfélagsleg samþykkt fyrir því að það sé í lagi að drekka og taka eiturlyf heilu næturnar og ráfa svo um vitstola og berja fólk. Þetta ræður lögreglan ekki við að stoppa heldur þarf þarna ákveðna hugarfarsbreytingu, bæði hjá borgaryfirvöldum og borgarbúum. Hingað í miðbæinn kemur fullt af fólki sem ekki býr í miðbænum og tekur þá upp breytta hegðun. Það gengur ekki öskrandi og froðufellandi með barsmíðum og grafittíi um götuna sína. Það er ekki bara gatan sem maður býr í sem skiptir máli heldur borgin öll. Ég hef mun meiri áhyggjur af andlegum status fólks sem ekki býr í 101 en þeirra sem þar búa," segir miðbæjarbúinn og rithöfundurinn að skilnaði.
Mest lesið Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Lífið Fleiri fréttir „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Sjá meira