Þrjú fræðasvið Háskólans á Akureyri viðurkennd 23. apríl 2008 09:40 Frá vinstri: Ingi Rúnar Eðvarðsson deildarforseti viðskipta- og raunvísindadeildar, Hermann Óskarsson deildarforseti heilbrigðisdeildar, Kristín Aðalsteinsdóttir deildarforseti kennaradeildar, Þorsteinn Gunnarsson rektor, Sigurður Kristinsson deildarforseti félagsvísinda- og lagadeildar og Sigrún Magnúsdóttir gæðastjóri. MYND/Jóna Jónsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti Háskólanum á Akureyri viðurkenningu vegna fræðasviða við athöfn í Þjóðmenningarhúsi í gær. Viðurkenningarnar eru byggðar á áliti alþjóðlegra sérfræðinefnda sem fóru yfir starfsemi háskólans og skiluðu ítarlegum skýrslum um hana. Niðurstöður sérfræðinefndanna eru jákvæðar og mæltu þær einróma með að háskólinn öðlaðist viðurkenningu á fræðasviðum auðlindavísinda, félagsvísinda og heilbrigðisvísinda. Vandlega ber að huga að alþjóðlegri starfsemi Nefndin um auðlindavísindi telur að kennsla og rannsóknir í auðlindavísindum snúist um málefni sem miklu skipta fyrir nánasta umhverfi og landsfjórðung háskólans, enda þótt samstarf á landsvísu sem og á alþjóðavettvangi sé einnig veigamikill þáttur. Bent er á að vandlega skuli huga að þætti hinnar alþjóðlegu starfsemi í áætlunum háskólans og nýta ætti sem allra best þau færi sem gefast til samstarfs á alþjóðlegum vettvangi til að styrkja fræðilega þekkingu innan háskólans og vekja athygli á honum erlendis. Nefndin um félagsvísindi fullyrðir að kennslu og rannsóknum í félagsvísindum hafi fleygt fram í Háskólanum á Akureyri á tiltölulega skömmum tíma og að stjórnendur, starfsfólk og nemendur skólans vinni af krafti við að efla háskólann enn frekar. Jafnframt kemur fram að háskólinn eigi skilið viðurkenningu fyrir þá aðstöðu til fjarkennslu sem byggð hefur verið upp sérstaklega sú stefna að vinna náið með símenntunarmiðstöðvum um land allt. Gott samstarf nemenda og kennara Nefndin um heilbrigðisvísindi gefur þeim vísindum jákvæða umsögn. Starf kennara og framlag nemenda fær einnig góða dóma. Samstarfi nemenda og starfsmanna er hælt og vakin athygli á þeirri staðreynd að smæð háskólans auðveldi jákvæð og gjöful tengsl á milli þessara aðila.Allar nefndirnar lögðu fram ýmsar gagnlegar ábendingar um starfsemi Háskólans á Akureyri og hefur þegar verið brugðist við þeim, að sögn upplýsingafulltrúa skólans.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Sjá meira