Samningar um sölu á Fríkirkjuvegi 11 tefjast vegna tíðra stjórnarskipta 12. febrúar 2008 14:24 Thor Jensen reisti Fríkirkjuveg 11 fyrir um hundrað árum. MYND/Pjetur
Samningum vegna sölu á Fríkirkjuvegi 11 er enn ekki lokið þrátt fyrir að samþykkt hafi verið í borgarráði fyrir um ári að selja það til Novators. Ástæðan fyrir þessu eru tíð meirihlutaskipti í borginni. Borgarráðs samþykkti þann 8. febrúar í fyrra að taka tilboði Novators, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, í Fríkirkjuveg 11. Thor Jensen, langafi Björgólfs Thors, átti eitt sinn húsið. Kaupverðið var 600 milljónir en möguleiki var á að verðið hækkaði um allt að 200 milljónir ef um semdist um ákveðnar breytingar á lóðinni við húsið, til að mynda viðhafnaraðkomu að húsinu frá Fríkirkjuvegi. Hrólfur Jónsson, framkvæmdastjóri eignasjóðs borgarinnar, sem fer nú með málið, segir í samtali við Vísi að sviðsstjórum umhverfissviðs, skipulags- og byggingarsviðs og framkvæmasviðs hafi í fyrra verði falið að komast að samkomulagi við Novator um breytingarnar á lóðinni. Drög að samkomulagi lágu fyrir þegar meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var við völd. Meðal þess sem gert var ráð fyrir var að strætóstoppistöð, sem er horni Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar yrði færð fyrir framan húsið og síðan yrði lagður grassteinn á bak við stoppistöðina þar sem hægt væri að aka inn í garðinn við ákveðin tækifæri, t.d. þegar veislur væru haldnar í húsinu. Þá væri gert ráð fyrir aðkomutorgi sem auðveldaði aðkomu að húsinu. Enn fremur væri hugmyndir um breytingar á bak við húsið til þess að auðvelda aðgengi fyrir þá sem þyrftu að sinna veisluþjónustu, en nýir eigendur hyggjast nýta húsið meðal annars fyrir veislur og fundi. Að sögn Hrólfs náðist ekki að ljúka málinu áður en meirihluti framsóknarmanna og sjálfstæðismanna sprakk en meirihlutinn sem þá tók við hafði aðra sýn á málið sögn Hrólfs. Því lauk ekki í tíð þess meirihluta og því er þriðji meirihlutinn með málið núna. Staða málsins var kynnt á síðasta fundi borgarráðs, sem var á fimmtudaginn, og var því frestað þá. Hrólfur bendir á að það sé kjörinna fulltrúa að taka ákvörðun í málinu. Ásgeirs Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að Björgólfur Thor og hans menn væru alltaf tilbúnir að ganga til samninga og ljúka málinu.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Safna fyrir Steinunni sem lést við barnsburð á Landspítalanum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Sjá meira