Dyravörður á skilorði dæmdur fyrir að berja feðga 12. febrúar 2008 13:26 Kaffi Viktor við Ingólfstorg.
Fyrrverandi dyravörður á Kaffi Viktor var í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar. Fjórir mánuðir af þeim eru þó skilorðsbundnir. Dyravörðurinn fyrrverandi réðist að feðgum fyrir utan skemmtistaðinn í semptember 2006. Feðgarnir sátu við borð fyrir utan staðinn þegar dyravörðurinn réðist að þeim. Hann hristi stól föðurins, tók hann hálstaki og henti honum í gangstéttina. Síðan beit hann í vísifingur vinstri handar hans með þeim afleiðingum að 1 cm langur skurður myndaðist. Því næst tók hann soninn hálstaki, kýldi hann hnefahöggi í andlit þannig að hann féll í götuna og rotaðist. Hlaut hann 2 cm langan skurð á vinstri kinn, skurð innan á vinstri vör og skurð á höku. Dyravörðurinn fyrrverandi neitaði fyrir dómi að hafa ráðist á feðgana með fyrrgreindum hætti, hann hefði hvorki bitið né kýlt í andlit, tekið menn hálstaki eða hrist stóla. Á sakarvottorði dyravarðarins kemur fram að hann hlaut skilorðsbundinn dóm vegna líkamsárársar og vopnalagabrota þann 30.október 2006. Kemur þar fram að refsing hans hafi verið ákveðin tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár. Við athugun kemur hinsvegar í ljós að refsingin er ranglega tilgreind á vottorðinu. Hið rétta er að honum var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og þar af voru fjórir bundnir skilorði til þriggja ára. Með tilliti til þessa og að árásin er talin tilefnislaus var hann dæmdur í fimm mánaða fangelsi og þar af fjóra skilorðsbundið. Honum var einnig gert að greiða mönnunum skaðabætur.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira