Grunaður um brot gegn sjö manns 6. maí 2008 12:00
Karlmaður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að sjö börn og fullorðnir kærðu hann fyrir kynferðisbrot, sum mjög gróf. Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfesti í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun að karlmaður á fimmtugsaldri hefði setið í gæsluvarðhaldi síðan í apríl vegna rannsóknar á meintum kynferðisbrotum gagnvart börnum sem tengd eru fjölskyldu hans. Tvær kærur bárust frá barnaverndarnefnd í apríl en síðan hafa nokkrar bæst við. Meint brot varða sjö einstaklinga, sumir eru enn á barnsaldri en aðrir eru uppkomnir. Öll brotin eiga að hafa átt sér stað á meðan fólkið var á barnsaldri. Megnið af kærunum koma í gegnum barnaverndarnefnd á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhald yfir manninum var framlengt síðastliðinn fimmtudag til 14. maí. Björgvin vildi ekki upplýsa um efni kæranna en sagði að meint brot væru allt frá því að vera minni háttar og upp í mjög gróf kynferðisbrot og þau næðu yfir langt árabil. DV fullyrðir í dag að maðurinn sé háskólakennari og að kærurnar snúist meðal annars um nauðganir gegn dætrum hans, syni og vinkonu einnar dótturinnar. Eins kemur fram í DV að elstu brotin hafi verið framin fyrir hartnær 15 árum en þau nýjustu í vetur. Fréttastofa hefur fengið staðfest að kært var vegna þriggja dætra mannsins. Viðamiklar breytingar voru gerðar á kynferðisbrotalögum í fyrra, meðal annars var fyrningarákvæðinu breytt þannig að sök fyrnist ekki í mjög alvarlegum brotum. Sú breyting er hins vegar ekki afturvirk og því gæti verið að hluti af hinum meintu grófu kynferðisbrotum í þessu máli séu fyrnd.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira