Sjálfstæðismenn vilja Óskar frekar en Ólaf Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. ágúst 2008 11:57 Óskar Bergsson mun hugsanlega taka þátt í myndun nýs meirihluta
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna íhugar hvort slíta skuli meirihlutasamstarfi við Ólaf F. Magnússon borgarstjóra, gangi ekki að taka Óskar Bergsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, inn í núverandi meirihluta, líkt og sjálfstæðismenn hafa hug á. Borgarstjórnarmeirihlutinn hangir á einum manni og sjálfstæðismenn óttast að samstarfið við Ólaf verði viðkvæmara þegar að Hanna Birna Kristjánsdóttir tekur við borgarstjórastólnum af Ólafi snemma á næsta ári. Þess vegna vilja þeir helst freista þess að styrkja meirihlutann með því að taka Óskar inn í meirihlutasamstarfið með Ólafi. Þessar hugmyndir voru reifaðar við Ólaf borgarstjóra í gær og herma heimildir Vísis að hann hafi tekið fálega í þær. Þá hefur Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins sagt að ekki komi til greina að framsóknarmenn gangi inn í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og F-lista í borginni. Marsibil Sæmundsdóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, tók í svipaðan streng í samtali við Vísi í morgun. Þreifingar hafa verið í gangi á undanförnum dögum um breytingar á meirihlutanum en engar formlegar viðræður hafa verið í gangi. Heimildir Vísis herma að ef ekki náist að mynda nýjan meirihluta með bæði Ólafi og Óskari muni sjálfstæðismenn íhuga vandlega að skipta Ólafi út fyrir Óskar. Hvorki náðist tal af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Óskari Bergssyni, né Ólafi F. Magnússyni við vinnslu þessarar fréttar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira