Ásta Möller í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins 18. apríl 2008 13:39 Ásta Möller og Tabo Mbeki, forseti Suður-Afríku.
Ásta Möller alþingiskona hefur verið kosin í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins. Þetta er í annað sinn sem íslenskum þingmanni hlotnast þessi heiður en Geir Haarde sat í stjórninni á tíunda áratug síðustu aldar. Sambandið fundaði í vikunni í Suður-Afríku. Þingið var það 118. í röðinni og fór það fram í Höfðaborg. Fundinn sóttu alþingismennirnir Ásta Möller, formaður Íslandsdeildar, Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður og Þuríður Backman. Yfir 700 þingmenn frá 130 ríkjum sóttu þingið og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Í dag var haldinn þingfundur þar sem Ásta bar sigurorð af þýsku þingkonunni Moniku Griefahn í kosningu til framkvæmdarstjórnarinnar með 37 atkvæðum gegn 26. Ásta verður ein fjögurra fulltrúa í landahóp vestrænna lýðræðisríkja. Framkvæmdastjórn IPU hefur umsjón með rekstri samtakanna og er hún skipuð 17 fulltrúum sem kosnir eru til fjögurra ára. IPU var stofnað árið 1889 og hefur síðan verið stærsti vettvangur alþjóðasamstarfs þjóðþinga. Flest þjóðþing heims eiga aðild að sambandinu, 147 ríki auk sjö aukaaðildarríkja. Alþingi hefur átt aðild að sambandinu frá árinu 1951. Markmið sambandsins er að vinna að friði og samstarfi meðal þjóðþinga og treysta lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing í sessi. Helstu mál sem rædd voru á þinginu í Höfðaborg voru þróunaraðstoð, atvinnumál innflytjenda, mansal, mannréttindi, konur og fjölmiðlar og heilsa ungbarna og mæðra. Enn fremur fór fram umræða um baráttuna gegn fátækt í heiminum.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira