Íslenska rigningin Siggi stormur skrifar 28. nóvember 2008 10:00 úrkomudreifingin á landinu er ákaflega mismunandi, raunar svo mismunandi að allt að áttfaldur munur er á úrkomumagni eftir landssvæðum. Vísir/Vilhelm
Eftir langa þurrviðriskafla er hún alltaf kærkomin, gamla góða íslenska rigningin. Á hinn bóginn þekkjum við líka að hún getur verið þreytandi - stórrigningar og það jafnvel tíðar geta hreinlega gert væntingar okkar í sumarfríinu að engu. Hér skulum við staldra við. Tilfellið er að úrkomudreifingin á landinu er ákaflega mismunandi, raunar svo mismunandi að allt að áttfaldur munur er á úrkomumagni eftir landssvæðum. Skoðum fyrst hvar úrkoman á landinu er lang minnst eða minni en 400 mm á ári. Almennt má segja að þetta séu svæðin norðan stóru jöklanna okkar. Athygli vekja þó svæði eins og Húnavatnssýslurnar og landssvæði í nálægð við Mývatn sem fara í þennan flokk Næst eru það svæði þar sem ársúrkoman er á bilinu 400-800 millimetrar. Meginhluti alls Norðurlands er í þessum úrkomuflokki. Svæði við botn Breiðafjarðar og einnig Borgarfjörður að hluta. Án efa verður að telja að þessi svæði hafi nokkra yfirburði á önnur með tilliti til úrkomumagns því í næsta flokki eru svæði með úrkomu á bilinu 800-1200 mm. Í þessum flokki er láglendið á Vestfjörðum, hluti Snæfellsness og Vesturlands, Reykjavík og Reykjanes og síðan láglendið á Suðurlandi. Þá eru það svæði með 1200-2000 millimetra úrkomu á ári. Kirkjubæjarklaustur er í þessu flokki, Austfirðirnir og hluti Reykjaness við Krísuvík og Snæfellsnes. Svæði með mjög mikilli úrkomu eða 2-3000 millimetra á ári eru Suðurausturlandið og svæðin sunnan jökla. Vík í Mýrdal fellur undir þetta úrkomusvæði. Úrkomusvæði með yfir 3000 mm á ári eru stóru jöklarnir okkar að undanskyldum Hofsjökli og síðan eru svæði á Hellisheiðinni sem eru í þessum úrkomuflokki. Rétt er að nefna að hér er um úrkomumagn að ræða en ekki fjölda úrkomudaga.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira