Samskip sýknað og lögmaður sektaður 25. apríl 2008 11:10 Arnarfell, eitt skipa Samskipa.
Hæstiréttur snéri á miðvikudag úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í Dísarfellsmálinu svokallaða við. Kona krafðist skaðabóta á hendur Samskipum en eiginmaður hennar lést þegar Dísarfell, skip félagsins, sökk árið 1997. Héraðsdómur dæmdi Samskip til að greiða konunni tæpar tvær milljónir króna í miskabætur en Hæstiréttur sýknaði Samskip af þeirri kröfu á miðvikudag. Þá var lögmaður konunnar dæmdur til að greiða hundrað þúsund krónur í sekt vegna ummæla sem hann lét falla í héraðsdómsstefnu. Dísarfellið sökk þann 9. mars árið 1997 þegar það var á leið til Færeyja. Tólf skipverjar voru um borð og lentu allir í sjónum með þeim afleiðingum að tveir þeirra létust. Öðrum var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Konan krafðist bóta frá Samskipum á þeim grundvelli að orsök slyssins mætti rekja til bilunar eða vanbúnaðar skipsins. Hæstiréttur telur, ólíkt héraðsdómi, að konunni hafi ekki tekist að færa sönnur á að svo hafi verið. Þá taldi Hæstiréttu ósannað að mistök eða rangar ákvarðanir skipstjórnenda hafi orsakað slysið. Samskip var því sýknað af kröfu konunnar. Í héraðsdómsstefnu kom fram í máli lögmanns konunnar að maður hennar og skipsfélagar hans hafi haft mikla vantrú á skipinu og grunað útgerðina um græsku. Þá lét hann að því liggja að Dísarfellið hafi verið „manndrápsfleyta" og að eigendum þess hafi verið það ljóst. Hann benti einnig á að skipið hefði verið vel tryggt og þannig hafi fyrirtækið hagnast á því að skipið fórst. „Þannig hafi líf eiginmanns hennar verið lagt að veði fyrir velferð útgerðarinnar og eigendur skipsins, sem hafi á þessum tíma staðið verulega illa fjárhagslega," sagði lögmaðurinn. Þessi síðustu orð segir Hæstiréttur vera „sérstaklega vítaverð enda er með þeim gefið í skyn að aðaláfrýjandi hafi framið refsiverðan verknað." Lögmaðurinn var því dæmdur til að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira