Lögregla vill að Exodus hætti að selja úðabrúsa 4. janúar 2008 19:07
Rannsóknarlögreglan mætti í verslunina Exodus við Hverfisgötu í dag og óskaði þess að eigandi hætti sölu á úðabrúsum sem notaðir eru við veggjakrot. Eigandi verslunarinnar segist hafa orðið fyrir ofsóknum af hálfu embættismanna fyrir það eitt að selja brúsana. Umræðan um veggjakrot hefur verið áberandi að undanförnu eftir að tveir piltar ollu miklum skemmdum á húsum við Laugaveg síðastliðinn þriðjudag. Piltarnir hafa báðir játað brot sín en við yfirheyrslu sögðust þeir hafa keypta úðabrúsana sem þeir notuðu við verkið í versluninni Exodus við Hverfisgötu. Sú verslun er ein þeirra fárra sem selur slíka brúsa hér á landi. Tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn mættu í verslunina í dag þegar fréttamenn Stöðvar 2 voru á staðnum. Fór lögreglan þess á leit við eiganda að hann hætti sölu brúsanna. Nína Sigríður Geirsdóttir, eigandi Exodus, segir þetta ekki í fyrsta skipti sem embættismenn reyni að ýta á sig. Áður hafi fulltrúar frá Reykjavíkurborg meðal annars hótað að sturta rusli fyrir framan verslunina til að koma í veg fyrir að viðskiptavinir kæmust inn í hana. Þá segist hún einnig hafa orðið fyrir aðkasti frá almenningi fyrir það eitt að hafa brúsana til sölu. Hún segist hins vegar ekki ætla að draga brúsana úr sölu. Nína bendir á að nú þegar séu gildi reglur hjá versluninni sem miði að því að koma í veg fyrir að brúsarnir lendi í höndum skemmdarvarga. Hún segir flesta þá sem kaupa úðabrúsa nota þá í listrænum tilgangi og ekki til þess að krota á húsveggi og valda skemmdum.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Sjá meira