Sjúkratryggingafrumvarp samþykkt á þingi 10. september 2008 14:53 MYND/Anton
Frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar, sem gerir ráð fyrir sérstakri Sjúkratryggingastofnun sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, var samþykkt á Alþingi fyrir stundu með 36 atkvæðum gegn sex. Sex þingmenn sátu hjá. Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins hafa lýst sig andsnúna frumvarpinu og sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, við umræður í dag að verið væri að knýja í gegn stefnu Sjálfstæðisflokks og hluta Samfylkingar um að einkavæða heilbrigðiskerfið. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sagði hins vegar að markmið frumvarpsins væri að allir Íslendingar ættu völ á heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Þetta frumvarp myndi auðvelda það krefjandi eilífðarverkefni. Þá mótmælti Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, því að í frumvarpinu fælust skert réttindi sjúklinga eða einkavæðing. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins. sagði við atkvæðagreiðsluna að árangur lagasetningarinnar byggðist á framkvæmd laganna. Framsóknarflokkurinn væri ekki tilbúinn að taka ábyrgð á því hvernig framkvæmdavaldið færi með lögin og því hygðust þingmenn flokksins sitja hjá. Þá sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, að verið væri að setja múlinn upp í Samfylkingarfólk á þingi og það væri heilbrigðisráðherra sem teymdi það í málinu. Samfylkingin væri gengin inn í Sjálfstæðisflokkinn í sumum málum Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, benti á að aðeins einn af ráðherrum Samfylkingarinnar væri viðstaddur atkvæðagreiðsluna og hugsanlega væri einhverjum þeirra ekki eins rótt um frumvarpið og varaformanni flokksins. Sagði hann Vinstri - græn eru algjörlega andvíg markaðsvæðingu og einkarekstri í heilbrigðiskerfinu sem hér væri pakkað í silkiumbúðir. „Gróðahyggjan á hér eftir að vera lögmætt viðmið í heilbrigðisþjónustu á Íslandi," sagði Steingrímur. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra átti síðasta orðið og þakkaði hann þingmönnum fyrir starfið í kringum frumvarpið. Sagðist hann efast um að unnið hefði verið jafnvel að einu máli á þingi. Umræðan á þingi hefði verið upplýsandi með áberandi undantekningum og vísaði hann þar til orða Vinstri - grænna. Sagði ráðherra varhugavert þegar menn reyndu að gera ákveðna aðila innan heilbrigðiskerfisins og stjórnmálamenn tortryggilega. Í þessu frumvarpi hefði verið farið að ráðum færustu aðila. „Ég óska ykkur öllum til hamingju með þessa löggjöf," sagði heilbrigðisráðherra.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira