Yfirmaður greiningadeildarinnar ekur á BMW 26. október 2008 18:56 Það er Magnús Ragnarsson sem leikur Leif.
Síðasti þáttur sakamálaseríunnar Svartir Englar verður sýndur í kvöld. Í síðasta þætti gerðust hlutirnir ansi hratt, en þá fannst lík konu, sem hafði verið saknað, í vatnsþró í Hvalfjarðargöngunum. Konan sem hét Birgitta hafði verið að vinna að sérstökum njósnahugbúnaði fyrir greiningardeild lögreglunnar. Hugbúnaðurinn geymir allar persónuupplýsingar sem til eru um íslensku þjóðina. Yfirmaður greiningardeildarinnar heitir Leifur og er leikin af Magnúsi Ragnarssyni. Leifur er í uppáhaldi hjá dómsmálaráðherra og leyfist því margt sem öðrum lögreglumönnum leyfist ekki. Vísbendingar voru um það í síðasta þætti, að Leifur stæði á bakvið morðið á Birgittu og að dómsmálaráðherrann hafi sjálfur gefið skipun um það. Hvort svo reynist vera, kemur væntanlega í ljós í kvöld.Bílar koma mikið við sögu Glöggir sjónvarpsáhrofendur hafa tekið eftir því að bílar sögupersónanna koma mikið við sögu í þáttunum. Þannig ekur lögregluforinginn Leifur um á nýjustu gerð af BMW M3 sportbíl, en almennu rannsóknarlögreglumennirnir aka um á Hyundai og Renault bílum. Alls voru um þrjátíu ólíkir bílar notaðir í þáttunum og því þurftu framleiðendur þáttana að leita til eins af bílaumboðunum um lán á bílum fyrir persónurnar. Að sögn Haraldar Haraldssonar, markaðstjóra B&L, er algjörlega óvíst hvort að það gagnist fyrirtækinu nokkuð að hlaupa svona undir bagga með kvikmynagerðarmönnum. „Ég veit ekki hvort við seljum nokkuð fleiri bíla út á þetta, en óneitanlega er skemmtilegt fyrir starfsfólkið okkar og viðskiptavini, að sjá bíla frá okkur leika stórt hlutverk í svona vinsælu sjónvarpsefni," segir Haraldur. Aðspurður um sportbíl Leifs lögregluforingja, segir Haraldur að slíkir bílar séu bara seldir eftir pöntun og kosti vel á annan tug milljóna. „Ég á ekki von á að selja marga svona á næstunni. En þessi sem sést í þáttunum, er sem betur fer seldur."
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Lífið samstarf Fleiri fréttir Vill vera sú fyrirmynd sem hún hefði þurft Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira