Nýútskrifaður hundaþjálfari liður í hertu eftirliti í fangelsum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. maí 2008 12:47 Hin nýútskrifaða Elín Ósk Þórisdóttir ásamt hundinum Amigu. MYND/Halldór Valur Pálsson
Elín Ósk Þórisdóttir, fangavörður og hundaþjálfari, lauk grunnnámskeiði fíkniefnaleitarhunds og -þjálfara fyrir helgina. Um fjögurra vikna bóklegt og verklegt námskeið var að ræða og bættist hundurinn Amiga þar með í hóp fíkniefnaleitarhunda landsins. Páll Egill Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins, segir aðdragandann að hertri fíkniefnaleit á Litla-Hrauni vera aukna fíkniefnaneyslu meðal fanga upp á síðkastið. „Þess vegna leitum við allra leiða til að draga úr og koma í veg fyrir streymi fíkniefna inn í fangelsið. Þetta gerum við með tvennum hætti, annars vegar með því að draga úr framboðinu, m.a. með því að fjölga þjálfuðum fíkniefnaleitarhundum, breyta reglum um heimsóknir til fanga og herða leit á og í munum sem berast inn í fangelsið," segir Páll. Góður árangur á meðferðargangi Hann segir hina leiðina vera að draga úr spurn eftir efnum og sé svokallaður meðferðargangur á Litla-Hrauni liður í þeirri viðleitni. Gangurinn hafi verið starfræktur í á sjöunda mánuð og hafi fjármagn til rekstrar hans verið tryggt út árið. Þessa þjónustu hafi alls 29 fangar nýtt sér og staðið sig með sóma. „Við heyrum það jafnframt frá meðferðarstofnunum og öðrum fangelsum sem svo taka við þessum föngum að fangarnir hafi tekið sig verulega á. Þarna er um að ræða fólk sem sumt hefur verið áratugi í neyslu fíkniefna," útskýrir Páll. Hann tekur það fram að stærstur hluti aðstoðarinnar við fanga á meðferðargangi komi frá sálfræðingum og félagsráðgjöfum Fangelsismálastofnunar auk þess sem sérstakt heilbrigðisteymi á Litla-Hrauni komi að verkefninu. „Auk þess má alls ekki gleyma því að stærsti þátturinn í þessu eru fangaverðirnir sem sinna föngunum. Þetta er það sem við köllum tilsjónarfangaverði. Þeir eru með föngunum allan daginn, fylgjast með framvindu og eru sérþjálfaðir í þessum málum," segir Páll og bætir því við að nú sé svo komið að þessi starfsþáttur fangavarðanna sé orðinn hluti af námi í Fangavarðaskóla ríkisins.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Fleiri fréttir Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Sjá meira