Þorgerður myndi fara aftur til Peking 9. september 2008 14:03 MYND/Vilhelm
Kostnaður við ferð menntamálaráðherra, eiginmanns hennar og ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins til Peking þegar íslenska landsliðið í handknattleik lék til úrslita á Ólympíuleikunum nam 1,8 milljónum króna. Þetta sagði ráðherra á þingi í dag og sagðist standa við þá ákvörðun að fara í ferðina. Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði ráðherra út í ferðina og minnti á að þetta hefði verið í annað sinn sem ráðherra hefði farið til Kína á Ólympíuleikana. Sagði Jón að ráðherra hefði farið í seinni ferðina ásamt maka sínum og ráðuneytisstjóra og maka hans. Benti hann á að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefði verið starfandi forsætisráðherra á þessum tíma og spurði hver hefði tekið ákvörðun um ferðina. Enn fremur hvort ríkisstjórnin hefði fjallað og samþykkt um ferðina og hvort greiddir hefðu verið dagpeningar til maka. Enn fremur spurði Jón hvort valin hefði verið ódýr ferðatilhögun og gisting og hver heildarkostnaður við ferðain. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra benti á að íslenska landsliðið í handknattleik hefði verið að leika til úrslita á Ólympíuleikunum og að hún myndi taka þá ákvörðun aftur að fara til Peking enda væri um einstakan viðburð að ræða. Þrír hefðu farið í ferðina en ekki fjórir en aldrei hefðu verið greiddir dagpeningar til maka ráðherra. Upplýsti menntamálaráðherra að ferðin hefði kostað uym 1,8 milljónir króna. Sagðist hún hafa metið það svo að það hefði verið rétt að ábyrgðarmaður íþróttamála færi á þennan mikilvægasta viðburð í íslenskri íþróttasögu. Hún stæði við þessa ákvörðun líkt og hún stæði við það að eyða fjármunum ríkisins í að taka á móti landsliðinu með hátíð. Jón sagði út frá svörum ráðherra að dæma að málið hefði ekki verið rætt í ríkisstjórn og að ekki verið leitað ódýrra leiða við förina til Kína. Þorgerður sakaði Jón hins vegar um að fara með hálfkveðnar vísur og rangt mál. Heildarkostnaður við ferðirnar tvær lægi fyrir og það hefði komið skýrt fram að bæði íslensku landsliðsmennirnir og forsvarsmenn ÍSÍ hefðu talið mikilvægt að íþróttamálaráðherra og forseti Íslands yrðu viðstaddir úrslitaleikinn.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira