Innlent

Yfir helmingur íbúa Flóahrepps á móti Urriðafossvirkjun

Hópur íbúa í Flóahreppi afhendir á morgun lista með nöfnum 216 íbúa í hreppnum sem skora á sveitarstjórn að endurskoða ákvörðun sína um að setja Urriðafossvirkjun inn á aðalskipulag hreppsins.

Bent er á í tilkynningu að í Flóahreppi séu nú 424 íbúar 18 ára og eldri. Meirihluti þeirra hafi því lýst andstöðu sinni við áform sveitarstjórnar. Í texta undirskriftasöfnunarinnar segir orðrétt: „Við undirrituð íbúar í Flóahreppi skorum á sveitarstjórn Flóahrepps að endurskoða ákvörðun sína frá 35.fundi sveitarstjórnar 14.11.2007 um að setja Urriðafossvirkjun inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Að okkar mati er sveitarfélagið betur sett án virkjunarinnar."

Undirskriftarlistinn verður afhentur á skrifstofu hreppsins í fyrramálið og mun Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri veita honum móttöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×