„Átti ekki von á því að þetta færi svona“ Breki Logason skrifar 5. júní 2008 21:27 Tryggvi Jónsson
Tryggvi Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs segist fyrst og fremst vera ofboðslega feginn því að Baugsmálinu sé lokið. Hann hlaut þyngsta dóminn í Hæstarétti í dag, 12 mánuða skilorðsbundið fangelsi. „Maður átti samt ekki von á því að þetta færi svona," segir Tryggvi sem hefur verið sakborningur í Baugsmálinu í 6 ár. „Í ljósi þess að búið er að gramsa í þessu í svona langan tíma þá finnst mér þetta afskaplega rýr uppskera og er í raun meiri dómur yfir Ríkislögreglustjóra og stjórnendum þar og saksóknara en yfir okkur Jóni," segir Tryggvi sem fór fram á sýknu í Hæstarétti. „Ég átti nú von á sýknu eða lægri dómi. En svona er þetta, það tjáir víst lítið að deila við dómarann." Tryggvi segir að ekkert fyrirtæki hefði getað staðist 6 ára skoðun án þess að eitthvað rykkorn fyndist. „En við höfum alltaf lagt áherslu á það sjálfir að við töldum okkur vera að gera rétt, þó dómurinn sé því ósammála," segir Tryggvi og nefnir að málið liggi til meðferðar hjá mannréttindadómstólnum. Í hlutafélagalögum segir að stjórnarmenn eða framkvæmdarstjórar megi ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað. Menn velta því fyrir sér hvort Tryggvi og Jón Ásgeir verði að segja úr einhverjum stjórnum. „Þessi lög sem þú nefnir eru byggð á dönskum lögum og eru fyrst og fremst sett til þess að ná utan um svokallaða kennitöluflakkara. Að okkur vitandi hefur aldrei neinn þurft að fara úr stjórn sem hefur fengið dóm á sig og því er ekkert fordæmi fyrir þessu," segir Tryggvi. „ Síðan er spurning hvort það sé hægt að banna mönnum að vera í stjórn fyrirtækis sem þeir eiga, og þá bara út frá eignarréttar sjónarmiði." Lög um hlutafélög númer 2 frá 1995, kafli 9 66. gr. Stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar skulu vera lögráða, fjár síns ráðandi og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Sjá meira