Verulega ósáttir við aðstöðuleysi siglingafélags Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. maí 2008 11:26 Bráðabirgðaaðstaða Ýmis í Kópavogi. MYND/Baldvin Björgvinsson
Forsvarsmenn Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi kveðast verulega óánægðir með að Kópavogsbær hafi svikið félagið um bráðabirgðaaðstöðu sem því hafi verið lofað þar til framkvæmdum lýkur við nýja aðstöðu félagsins Fossvogsmegin í Kópavoginum en hennar hefur verið beðið í sjö ár. Í frétt á heimasíðu Brokeyjar, siglingafélags Reykjavíkur, er nágrönnum í bryggjuhverfi Kópavogs kennt um að hafa beitt bæjaryfirvöld Kópavogs þrýstingi til að losna við starfsemi Ýmis úr nágrenni sínu. Er það orðað svo á síðunni: „Nú í dag var verið að koma fyrir bráðabirgðaaðsöðu fyrir barna og unglingastarfið í gámum við Kópavogshöfn og þá brjáluðust nágrannarnir. Þeir eru svo sem þekktir þeir sem búa á hafnarsvæðinu í verbúðunum við hliðina á Eininga- og steypustöðinni Borg. Síðast var það sementsryk, nú eru þeir brjálaðir yfir því að siglingaklúbburinn, mengunarlaus með öllu, sé þarna til bráðabirgða." Sigurður Ragnarsson hjá Ými segir að eftir hádegið í dag muni Kópavogsbær fjarlægja gáma sem félagið hafi komið fyrir til nota við starfsemina í sumar og minnka alla aðstöðu félagsins verulega. „Þetta er út af ólgu í fólkinu sem býr þarna í bryggjuhverfinu. Sumir þar eru mjög almennilegir en aðrir alls ekki," segir Sigurður. Hann segir skóflustungu að nýju aðstöðunni í Vesturvör verða tekna 6. janúar og teikningar séu langt komnar. Sú aðstaða verði því ekki tilbúin nærri því strax. Sigurður segist ekki hafa náð sambandi við Gunnar Birgisson bæjarstjóra en eigi pantað viðtal við hann á mánudagsmorgun. Aðstöðuleysið komi til dæmis niður á barnastarfi siglingafélagsins sem sé bagalegt. Vísir á von á að heyra frá forsvarsmönnum Kópavogsbæjar á hverri stundu.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent