Innlent

Áhöfn á herskipi skoðar vestfirska náttúrufegurð

HMS Exeter á siglingu á Thames-á.
HMS Exeter á siglingu á Thames-á.

Íbúar og vegfarendur í Dýrafirði ráku upp stór augu í morgun þegar stærðarinnar herskip sást sigla inn fjörðinn. Þarna var þó ekki um innrás að ræða heldur var þarna á ferðinni breska herskipið HMS Exeter sem komið er hingað til lands til þess að taka þátt í minningaratburðum um skipalestir Bandamanna til Rússlands í seinni heimsstyrjöldinni.

Skipið á að vera við Miðbakka í Reykjavíkurhöfn á morgun en að sögn Landhelgisgæslunnar fengu skipverjar leyfi til þess að sigla inn á Dýrafjörð til þess að dást af landi og þjóð. Fylgir sögunni að þeir myndi nú verstfirska náttúrufegurð og fólk í gríð og erg.

Það eru Sagnfræðistofnun HÍ og Alþjóðaver sem standa fyrir ráðstefnu og minningaratburðum um skipalestirnar úr síðari heimsstyrjöldinni. Í tilkynningu frá þeim kemur fram að lestirnar hafi safnast saman á Íslandi en þær fluttu vistir og vopn frá Bandaríkjunum og Evrópu til Austurvígstöðvanna. Eru þær taldar mikilvægur þáttur í sigrinum á nasistum í seinni heimsstyrjöldinni.

„Þeir sem þátt tóku í siglingunum hafa átt samskipti og haldið hópinn. Um nokkurra ára skeið hafa samtök, sem stofnuð voru í Rússlandi til að halda minningu skipalestanna á lofti, litið til Íslands sem vöggu lestanna og óskað eftir samstarfi til að rækta minningu þessara mikilvægu atburða.

Hugmynd að minningaratburðum um skipalestirnar má rekja til Péturs H. Ólafssonar sjómanns sem sigldi með skipalestunum til Rússlands á stríðsárunum. Hann hefur í seinni tíð verið afar virkur í starfi eldri borgara. Pétur var nýverið sæmdur heiðursmerki Rússa og hefur tekið þátt í minningaratburðum einkum með Rússum og Bretum en einnig fulltrúum fleiri þjóða," segir í tilkynningu vegna atburðanna.

Þar kemur einnig fram að margir eftirlifendurnir muni heimsækja Ísland í fyrsta sinn síðan þeir tóku þátt í þessum sögulegu atburðum fyrir meira en sextíu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×