Innlent

Eldur í bíl ferðmanna skammt frá Blönduósi

Lögreglan á Blönduósi var kölluð til eftir að bifreið erlendra ferðamanna hafnaði utan vegar og eldur kom upp í henni að sögn sjónarvotta. Atvikið varð í grennd við Sveinsstaði rétt vestan við brúna yfir Vatnsdalsá, um 20 kílómetra frá Blönduósi, laust eftir klukkan tólf. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið þar sem lögregla er enn á vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×