Innlent

Rauða kross konur gefa Grensás lyftubrautir

Frá afhendingu lyftubrautanna.
Frá afhendingu lyftubrautanna.

Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða krossins færði fyrir stuttu sjúkraþjálfun á Grensási tvær lyftubrautir í loft ásamt fylgihlutum.

Önnur lyftubrautin er notuð til að flytja sjúklinga frá stól eða rúmi yfir á meðferðarbekk en hin er aðallega notuð fyrir gönguæfingar. Þar er hægt að,,hengja sjúklinginn upp", eins og segir í fréttatilkynningu, og láta hann ganga án þess að þurfa að óttast að hann detti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×