Þungt hljóð í hjúkrunarfræðingum SB skrifar 8. júlí 2008 19:49 Á fundi hjúkrunarfræðinga og ríkissáttasemjara. "
Maður var kannski bjartsýnni en tilefni var til," segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félags hjúkrunarfræðinga en ekki náðist sátt á fundi samninganefndar ríkisins og félagsins þrátt fyrir að vöfflur væru á borðum. Hjúkrunarfræðingar hafa boðað yfirvinnubann á fimmtudaginn náist ekki samningar. Tíminn til að semja styttist því óðum og ljóst er að spenna er hlaupin í samningaviðræðurnar sem virtust ætla að blessast í gærkvöldi. Þá sagðist Elsa vera bjartsýn á lausn. Í kvöld er þyngra í henni hljóðið. "Ég viðurkenni það að ég var kannski bjartsýnni en tilefni gaf til. En við höldum allavega áfram. Það er annar fundur klukkan ellefu í fyrramálið þar sem við munum halda áfram þeirri vinnu sem við vorum í. Maður vonar að samningar náist," segir Elsa. Á Vísi í gær var Elsa spurð út í það bakkelsi sem væri á borðum hjá fundi félagsins og ríkissáttasemjara og vildi hún þá lítið tjá sig í það. Í dag segir hún að bryddað hafi verið upp á nýjun. "Já, það voru bakaðar vöfflur," segir hún og hlær en miðað við útkomuna er ljóst að vöfflurnar hafi ekki ráðið úrslitum. "Nei, ég var nú hissa á að lyktin virkaði ekki meira hvetjandi," segir Elsa.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Fleiri fréttir Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Sjá meira