Kjartan ekki hættur við Bitruvirkjun 24. júlí 2008 00:01 Miklar framkvæmdir eru þegar í gangi á Hellisheiði sem skila 270 megavöttum þegar þeim hefur verið lokið. Fréttablaðið/GVA „
Ekki hefur verið hætt við Bitruvirkjun heldur undirbúningi hætt meðan málið er skoðað betur,“ segir Kjartan Magnússon, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn Orkuveitunnar samþykkti á fundi sínum í maí að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar og fresta frekari framkvæmdum á svæðinu. Borgarstjóri óskaði borgarbúum þá til hamingju með að Bitruvirkjun hefði verið slegin af. Kjartan sagði við það tilefni að rétt hefði verið hjá borgarstjóra að þessar framkvæmdir hefðu verið slegnar af, hvað sem yrði í framtíðinni. Nú segir Kjartan alls ekki fallið frá öllum áformum um virkjunina. „Við brugðumst við mjög eindregnu áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar og samþykktum því að fresta framkvæmdum.“ Hann segir spurningar um, hvort hlutverk Skipulagsstofnunar sé að taka afstöðu gegn virkjunum eins og þar var gert, hafi komið fram í kjölfarið og verði skoðaðar. „Ákvarðanir um framhald verkefnisins verða teknar í samráði við eigendasveitarfélög Orkuveitunnar og sveitarfélagið Ölfus sem stýrir skipulagi svæðisins.“ Kjartan bendir einnig á að þrátt fyrir að ákveðið hafi verið að doka við með Bitruvirkjun sé unnið að miklum framkvæmdum á Hellisheiði. Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, gagnrýna í Markaðnum í gær að meirihlutinn í borginni virðist hafa tekið Bitruvirkjun út af borðinu. Bjarni kveðst telja menn þar hafa hlaupið á sig. „Ég trúi því að áður en mjög langt um líður muni menn átta sig á því og vinda ofan af þeirri ákvörðun og taka aftur til við virkjanir á Hellisheiðinni,“ segir Bjarni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira