Ólafur Ragnar þarf ekki samþykki orðunefndar 25. ágúst 2008 10:54 Forsetahjónin óskuðu leikmönnum íslenska landsliðsins til hamingju með sigurinn á Pólverjum fyrir helgi. MYND/Vilhelm
Orðunefnd gerir tillögur til forseta Íslands um veitingu orðunnar og er hún veitt tvisvar á ári. Aftur á móti getur forsetinn ef honum þykir efna standa til veitt orðuna án þess að orðunefnd leggi það til. Samkvæmt frétt Associated Press íhugar Ólafur Ragnar Grímsson að sæma íslenska handboltalandsliðið, sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í gær, fálkaorðunni þegar liðið kemur til landsins næstkomandi miðvikudag. Að öllu jöfnu er fálkaorðan veitt eftir að sex manna orðunefnd hefur fjallað um málefni orðunnar. Öllum er frjálst að tilnefna einstaklinga sem þeir telja verðuga sem orðuþega. Nefndarmenn bera sjálfir heiðursmerki orðunnar. Tilnefningar verða að berast með skriflegum hætti og þar skal koma fram ástæður þess að heiðra eigi viðkomandi með fálkaorðu. Orðustig fálkaorðunnar eru fimm. Fyrsta stig hennar er riddarakross og eru flestir orðuþegar sæmdir honum. Ákveði Ólafur að veita landsliðsmönnunum orðuna fá þeir riddarakrossinn. Annað stigið er stórriddarakross, síðan kemur stórriddarakross með stjörnu og loks stórkross. Æðsta stig hinnar íslensku fálkaorðu er keðja ásamt stórkrossstjörnu en hana hljóta einungis þjóðhöfðingjar. - Ólafur Ragnar íhugar að sæma strákana fálkaorðunni
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um varðandi samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Sjá meira