Innlent

Lára býður sig fram til að rannsaka bankahrunið

Sturla Böðvarsson forseti alþingis sagði í gær að nefnd til að rannsaka orsakir og aðdraganda bankahrunsins yrði skipuð fyrir jól. Lára Ómarsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona sendi honum tölvupóst í morgun, og bauð sig fram í nefndina sem fulltrúi almennings.

„Persónulega finnst mér að það eigi að vera venjulegur Íslendingur í þessari nefnd. Málsvari litla mannsins ef svo má að orði komast," segir Lára sem telur það nauðsynlegt ef nefndin eigi að njóta traust að í henni sitji óháðir fulltrúar almennsins. Fólks sem var ekki tengt inn í bankana eða stjórnmál.

Sjálf segist Lára einmitt vera ofurvenjulegur Íslendingur. Hún hafi aldrei átt hlutabréf, teljist seint rík, hafi ekki unnið í banka og eigi enga vini eða vandamenn á þingi eða í lykilstöðum í bönkum.

Hún telur einnig að reynsla sín úr fjölmiðlaheiminum nýtist vel í slíku starfi.

„Mér finnst fjölmiðlamanneskja eiga erindi í þessa nefnd," segir Lára sem sjálf hefur töluverða reynslu af rannsóknarblaðamennsku. Hún vann lengi fyrir fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem hún tók meðal annars þátt í að fletta ofan af Byrgismálinu svokallaða. „Ég hef víðtæka reynslu af því að rannsaka mál og reyna að komast að sannleikanum, er óhrædd við að axla ábyrgð og veigra mér ekki við að taka að mér mikla vinnu," segir Lára sem býður eftir svari Sturlu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×