Ánægðir með Íslandsför 5. nóvember 2008 03:00 Frank og Casper eru orðnir að hálfgerðum tískutáknum á Íslandi að mati danska blaðsins Jyllands Posten. mynd/Ólafur Rafnar Ólafsson
Danska dagblaðið Jyllands-Posten fjallar ítarlega um ferð þeirra Klovn-bræðra, Casper Christiansen og Frank Hvam, til Íslands. Þeir félagar voru hæstánægðir með móttökurnar. Jyllands-Posten segir að vinsældir Klovn séu það miklar að þeir Frank og Casper séu orðnir að einhvers konar tískutáknum á Íslandi. Þar er Íslendingum jafnframt þakkaður sá mikli áhugi sem önnur norðurlönd hafi sýnt þáttunum. Í umfjöllun blaðsins segir að þótt Íslendingar geti ekki hlegið mikið um þessar mundir vegna efnahagsástandsins þá skelli þeir uppúr yfir svaðilförum Trúðanna. Tekið er viðtal við Maríu Hjálmarsdóttur sem er stofnandi Klovn-aðdáendahópsins og tvær stúlkur sem gerðu sér sérstakt far á barinn til að berja þá félaga augum. Casper og Frank eru síðan teknir tali af vefsjónvarpi Jyllands-Posten og þar segja þeir að þessi mikli áhugi á þáttunum á Íslandi komi þeim spánskt fyrir sjónir. En þeir séu á hinn boginn ákaflega hrærðir yfir þessum viðtökum. „Við fáum ekki mikið greitt fyrir að fara svona ferðir. En það gefur okkur aftur á móti mikið að fá svona mikil og góð viðbrögð við þáttunum," segir Frank við blaðamann Jyllands-Posten þar sem hann er staddur á ónafngreindum bar í Reykjavík. Casper er hins vegar ekki í vafa um af hverju Klovn sé svona vinsælt. „Við Frank vildum gera þætti um menn í kringum fertugt sem lífið léki við. Málið væri hins vegar að þeir kæmu sér stöðugt í einhver vandræði, væru alltaf að fokka hlutunum upp. Og það hefur hreinlega sýnt sig að þetta er frekar alþjóðlegt vandamál."
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Sjá meira