Mikill áhugi á samvinnu Íslands og Mexíkó 12. mars 2008 07:27
Í viðræðum forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar við forseta Mexíkó Felipe Calderón á fyrsta degi opinberrar heimsóknar forseta Íslands kom fram ríkur áhugi á að hrinda í framkvæmd fjölmörgum samvinnuverkefnum milli landanna. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að þar beri hæst virkjun jarðhita og annarra hreinna orkugjafa en Mexíkó hefur fjölþætta möguleika til að nýta sér reynslu Íslendinga á því sviði, nýjungar á sviði sjávarútvegs og fiskiðnaðar en þörf er á endurskipulagningu þeirrar atvinnugreinar í landinu, rannsóknir og samstarf háskóla og ýmis verkefni á sviði menningar, uppeldis og heilbrigðismála. Fulltrúar íslenskra fyrirtækja og háskóla sem skipa viðskiptasendinefnd sem fylgir forseta Íslands í heimsókninni hafa átt viðræður við samstarfsaðila í Mexíkó og tekið þátt í sérstökum fundum um samvinnu landanna. Meðal fyrirtækja og stofnana í viðskiptasendinefndinni eru Landsbankinn, Glitnir, Geysir Green Energy, Háskólinn í Reykjavík, RES orkuskóli, Marel og Latibær. Íslensku sjávarútvegsfyrirtækin Hólshyrna og Korni sem starfað hafa í Mexíkó undirrituðu á fyrsta degi heimsóknarinnar víðtæka samstarfssamninga við stjórnvöld í mexíkóskum sjávarútvegi, og Latibær mun á öðrum degi heimsóknarinnar kynna samninga við WalMart í Mexíkó. Forseti Mexíkó lýsti yfir eindregnum stuðningi við framboð Íslands til Öryggisráðsins og tilkynnti að Mexíkó vænti mikil af samstarfi við Ísland í ráðinu. Þá þáði hann með þökkum boð um að heimsækja Ísland til að styrkja enn frekar þau samstarfsverkefni sem hér væru á dagskrá.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira