Ingibjörg: „Ásættanleg niðurstaða“ 16. nóvember 2008 17:49
Þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynntu nú fyrir stundu að samkomulag hafi náðst við Evrópusambandið varðandi Icesave reikninga Landsbankans. Í samkomulaginu fellst að Íslendingar viðurkenna að þeim beri að tryggja innistæður að hámarki 20.877 evrum á hverjum reikningi í samræmi við lög um tryggingasjóð innistæðueigenda. Í framhaldi af þessu munu Íslendingar hefja viðræður við Breta og Hollendinga um hvernig staðið verði að því að greiða út peningana. Ingibjörg Sólrún sagði á fundi í Ráðherrabústaðnum að ekki væri útilokað að þjóðirnar láni Íslendingum fyrir upphæðunum en hún ítrekaði þá skoðun sína að eignir Landsbankans í viðkomandi löndum eigi að duga fyrir þeim. Aðspurð um hve háar upphæðir væri að ræða vildi Ingibjörg ekki tilgreina það nákvæmlega en hún segir þó að um sé að ræða um það bil 600 milljarða króna. Að mati Ingibjargar er um ásættanlega niðurstöðu að ræða fyrir Íslendinga enda hafi þjóðin verið orðin „vinafá" á alþjóðlegum vettvangi. Samkomulagið sem nú er í höfn gerir það að verkum að opnað verður fyrir lánalínur til Íslendinga að nýju auk þess sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett umsókn Íslendinga um lán á dagskrá á miðvikudaginn.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Sjá meira