Hrun blasir við í fjármálum sveitarfélaga 13. nóvember 2008 14:19 MYND/Vilhelm
Rekstarhalli sveitarfélaganna verður 4,3 milljarðar króna, eða þrjú prósent af tekjum, í ár og 30 milljarðar króna á næsta ári sem svarar til um fimmtungs af tekjum þeirra. Þetta kom fram í máli Karl Björnssonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, á fjármálaráðstefnu þeirra í dag.„Þessar tölur um stöðu og horfur í fjármálum sveitarfélaga tákna auðvitað ekkert annað en hrun þegar á heildina er litið," sagði Karl. Hann býst við að afkoma sveitarfélaganna verði lítið eitt skárri 2010 og lagist ögn frekar 2011. Jafnvægi verði ekki náð fyrir en 2012 eftir því sem haft er eftir honum í tilkynningu frá sambandinu.Karl velti upp ýmsum möguleikum til að bregðast við vandanum en dró ekki dul á að einhver sveitarfélög, sem eiga afkomu sína að miklu leyti undir Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og eru jafnframt í fjárhagserfiðleikum, myndu trúlega lenda í forsjá eftirlitsnefndar og ráðuneytis á næsta ári. Önnur muni þrauka en örfá „fara létt í gegnum kreppuna".Meðal viðbragða sem Karl nefndi var að hækka hámarksútvar, fasteignagjöld og gjaldskrár og innheimta gjöld þar sem þjónusta nú er án endurgjalds og að fá aukinn hlut í heildarskatttekjum hins opinbera. Þá þyrfti að draga úr útgjöldum með því til dæmis að draga úr launahækkunum eins og kostur er, endurskoða starfsemina og velta fyrir sér hvort unnt væri að fjölga nemendum í bekkjardeildum og sameina eða leggja niður stofnanir.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira