Enski boltinn

Behrami á leið til West Ham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Valon Behrami.
Valon Behrami.

Gianluca Nani, yfirmaður íþróttamála hjá West Ham, hefur staðfest að félafið sé að landa svissneska varnarmanninum Valon Behrami frá Lazio. Alan Curbishley heillaðist af Behrami á Evrópumótinu í sumar.

Þegar West Ham sýndi áhuga fór Behrami fram á það við Lazio að vera seldur. Talið er að enska liðið muni greiða rúmar fimm milljónir punda fyrir þjónustu Behrami

Behrami er bakvörður en getur einnig leikið sem miðvörður eða á vængnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×