Ísland boðar gæfu fyrir botni Miðjarðarhafs Kristinn Hrafnsson skrifar 21. apríl 2008 17:00 Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna „
Ísland boðar gæfu fyrir friðarviðræður Palestínumanna og Ísraela," segir Yassir Najjar, sendiherra heimastjórnar Palestínumanna gagnvart Íslandi, í samtali við Vísi. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, kemur til Íslands á morgun og hefur Najjar verið að undirbúa heimsóknina. Í morgun bárust þau mikilvægu tíðindi frá Sýrlandi að útlægur leiðtogi Hamas, Kahled Meshal, væri reiðubúin að fallast á niðurstöðu friðarviðræðna. „Þetta er ákaflega mikilvæg yfirlýsing," segir sendiherrann en til þessa hefur Hamas ekki ljáð máls á að styðja Abbas, fulltrúa Fatah, hófsamari arms Palestínumanna, í friðarviðræðum. Najjar segir að svo virðist sem Íslandsheimsóknin hafi þarna borið gæfu með sér og segist vonast til þess að nú fari í hönd viðræður sem leiði til friðar.Aðkoma Rússa sögð mikilvægJimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.MYND/APAbbas forseti hefur víða farið síðustu daga til að reyna að koma friðarviðræðum á skrið á ný en ekkert hefur áunnist síðustu mánuði frá því deiluaðilar hittust á árangurslausum viðræðufundi í Bandaríkjnum í nóvember. Á fundi með Pútín Rússlandsforseta fyrir helgi kom fram sá vilji hjá Abbas að næsta viðræðulota yrði í Rússlandi í júní. Aðkoma Rússa að lausn deilumála í Miðausturlöndum er mikilvæg. Samband Rússa við Sýrlendinga er þar lykilatriði en mikilvægt er að hafa þá með í ráðum svo friður verði varanlegur. Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna hefur verið að miðla málum fyrir botni Miðjaðarhafs og átti fund með leiðtoga Hamas í Damaskus. Í morgun bar hann þau skilaboð frá honum að Hamas myndi fallst á að viðurkenna tilverurétt Ísraels og sætta sig við Ísraela sem friðsama nágranna á grundvelli friðarsamkomulags sem hefði landamæri frá 1967 að útgangspunkti. Eins að friðarsamkomulag yrði borið undir þjóðaratkvæði. Í opinberri heimsókn Abbas til Túnis í gær ítrekaði forseti Palestínumanna svo að ekkert samkomulag yrði staðfest nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Með þessum tíðindum morgunsins frá Damaskus og yfirlýsingum Abbas frá Túnis virðist grundvöllur komin að einingu og sátt palestínumanna, bæði Hamas og Fatah um forsendur og útkomu friðarviðræðna. „Ég er byrjaður að verða bjartsýnn," segir Yassir Najjar, sendiherra Palestínumanna á Íslandi og lætur á sér heyra að þetta sé bjartasta vonarglætan í friðarviðræðum Ísraela og Palestínumanna í langan tíma. Mahmoud Abbas kemur frá Túnis til Íslands í fyrramálið en heldur af landi brott annað kvöld á leið til fundar við George Bush Bandaríkjaforseta. Ferðin til Bandaríkjanna er til að tryggja aðkomu þarlendra að viðræðunum og með óbeinum hætti að fá þá til að þrýsta á ísraelsmenn í samningaviðræðunum. Leitar eftir stuðningi Íslendinga við friðarviðræðurIngibjörg Sólrún Gísladóttir heimsótti Vesturbakkann í fyrra.MYND/PjeturAbbas mun leita eftir stuðningi íslenskra stjórnvalda við friðarviðræðurnar og segir sendiherra palestínsku heimastjórnarinnar að Ísland geti lagt þar mikið af mörkum. „Íslendingar eru í vinasambandi bæði við Palestínumenn og Ísraela. Þeir eru því í góðri stöðu að miðla málum og tala við báða málsaðila. Það var einnig eftir því tekið að fyrsta opinbera heimsókn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem utanríkisráðherra var til Vesturbakkans, "segir Yassir Njjar, og bætir við: „Íslendingar hafa skilning á baráttu Palestínumanna enda börðust þeir fyrir sjálfstæði í hundrað ár. Okkar baraátta hefur staðið í 60 ár." Mahmoud Abbas mun hitta Ólaf Ragnar Grímsson forseta í fyrramálið og snæða hádegisverð á Bessastöðum. Eftir hádegi hittir Abbas Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira