Meirihluti heyrnarlausra í láglaunastörfum 29. júlí 2008 19:30
Sum fyrirtæki taka ekki í mál að ráða heyrnarlausa til starfa og önnur krefjast þess að Félag heyrnarlausra gangist í ábyrgð fyrir þá sem þeir ráða. Þetta segir atvinnuráðgjafi félagsins. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá máli þrítugs tækniteiknara sem er heyrnarlaus og hefur verið synjað um starf hátt í sjötíu sinnum. Laila Margrét Arnþórsdóttir atvinnuráðgjafi hjá Félagi heyrnarlausra segir þá hafa litla atvinnumöguleika þó þeir hafi framhaldsmenntun. Viðbrögð fyrirtækja séu mismunandi gagnvart heyrnarlausum starfsmönnum. „Til dæmis í Álverinu þar hefur verið þvertekið fyrir það að ráða inn heyrnarlausa þó svo maður geti bent á það að heyrnarlausir hafi til dæmis mun víðara sjónsvið en aðrir. Margir heyrnarlausir voru hér á árum áður eftirsóttir sjómenn af því þeir voru svo athugulir," segir Laila. Önnur fari fram á að félagið gangist í ábyrgð. „ Við höfum fengið viðbrögð þar sem óskað hefur verið eftir því að Félag heyrnarlausra bæri ábyrgð á starfsmanninum að við yrðum einhvers konar eftirlitsaðilar. Það er eins og við eigum að bera ábyrgð á starfsmanninum og kröfur fyrirtækja séu stundum að ef eitthvað kemur upp á þá yrðum við að sjá til þess að þetta gangi til baka," bætir Laila við. Hátt í tvö hundruð manns eru í Félagi heyrnarlausra og segir formaður þess að meirihluti félagsmanna sé í láglaunastörfum. Hún segir þetta sorglega staðreynd. „Við fáum ekki tækifæri til að nýta menntunina okkar vegna þess að það er hópur heyrnarlausra sem fær ekki sömu tækifæri til að nota þá menntun sem þeir hafa aflað sér eins og aðrir. Við getum gert allt, við þurfum bara að fá viðurkenningu og tækifæri til að sýna að við stöndum jafnfætis öðrum," segir Hjördís Anna Haraldsdóttir formaður Félags heyrnarlausra.
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira