Pottahúðsýkingum fjölgar ört Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 29. júlí 2008 12:56 Húðsýkingum hefur fjölgað ört með tilkomu heitra potta sem hita upp kalt vatn. Sýkingar eru ekki nærri eins algengar í eldri pottum sem dæla beint inn heitu vatni. MYND/GVA
Húðsýkingum vegna slæmrar umhirðu upphitaðra potta hefur fjölgað mjög hér á landi. Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir, segir að vandamálið sé að hluta til amerískt. Mikil fjölgun hefur orðið á rafmagnshituðum nuddpottum frá Bandaríkjunum þar sem kalt vatn er hitað upp og notað til langs tíma enda tímafrekt og kostnaðarsamt að hita upp nýtt kalt vatn í pottinn. „Fyrir utan þessar venjulegu sveppasýkingar sem við þekkjum til dæmis frá sundstöðunum þá verðum við vör við sérstakan sýkil sem virðist þrífast mjög vel þar sem er langvarandi hiti og raki," útskýrir Vilhjálmur. Verstu tilfellunum lýsir Vilhjálmur ekki ósvipað og hlaupabólu. „Flest vægu tilvikin lagast af sjálfu sér en þetta lýsir sér oft sem rauð þrymlabólga sem byrjar sakleysislega en getur síðan komið fram sem útbreidd sýking með bólumyndun og miklum kláða um alla húðina. Í flestum tilvikum eru sýkingarnar tiltölulega meinlausar en þetta er meira hvimleitt." Fylgjast þarf með sýrustigi og klórmagni Vilhjálmur segir að framleiðendur pottanna séu meðvitaðir um sýkingarhættur af þessu tagi og því séu pottarnir útbúnir kröftugum sjálfshreinsibúnaði og gefi strangar leiðbeiningar um umhirðu pottanna. Hins vegar sé ábótavant að fólk fylgi leiðbeiningum, til dæmis með því huga að klórmagni og sýrustigi. Sérstaklega er þessum málum illa fyrir komið í leigusumarbústöðum þar sem leiðbeiningar á íslensku eru sjaldnast til staðar og fólk hefur litla sem enga þekkingu á umhirðu pottanna. „Fólk kann á gömlu heitavatns pottana en það kann ekki eins vel þessa nýju. Því þurfa rétt efni að vera til staðar og nákvæmar og góðar leiðbeiningar á íslensku. Allir sem nota þessa potta verða að vita af sýkingarhættunni, gæta vel að hreinlæti og bregðast við ef sýkinga verður vart."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira