Mænuskaddaðir saka yfirvöld um mannfyrirlitningu 29. júlí 2008 13:15
Samtök mænuskaddaðra mótmæla harðlega þeirri mannfyrirlitningu sem þeir segja að lýsi sér í útboði Heilsugæslunnar þar sem auglýst er eftir rekstraraðila til þess að veita tímabundið 12 mikið fötluðum einstaklingum búsettum í Reykjavík, þjónustu við persónulega umhirðu. Íbúar í húsi SEM samtakanna að Sléttuvegi 3, notendur heimahjúkrunar, félagar og stjórn SEM funduðu um málið í gær. Í bréfi sem fundurinn sendi til yfirvalda segir að verið sé að fara aftur til fortíðar og þvert á allar hugmyndir í nútímasamfélagi. Það sé gengið í berhögg við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Þá segir að ekkert samráð hafi verið haft við þá sem eigi að njóta þjónustunnar. Ekki hafi verið tekið tillit til 22. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um virðingu fyrir einkalífi. Þar segir að aðildarríkin skuli tryggja að farið sé með upplýsingar um persónulega hagi, heilsufar og endurhæfingu fatlaðra sem trúnaðarmál á sama hátt og gildi um aðra. Þá segja samtök mænuskaddaða að í þeim löndum sem Íslendingar beri sig gjarnan saman við, svo sem Norðurlöndin sé fyrir löngu komið valfrelsi fyrir mikið fatlaða einstaklinga um hvernig þeirra aðstoð sé háttað. Guðmundur Magnússon, stjórnarmaður í SEM, segir að eftir að bréfið hafi verið sent út hafi Þórunn Ólafsdóttir hjúkrunarforstjóri Heilsugæslunnar haft samband. Fundað verði um málið á fimmtudag.
Mest lesið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Loðna fundist á stóru svæði Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Fleiri fréttir „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Sjá meira