Fórnarlamb handrukkara í Heiðmörk: Var hent úr út bíl á ferð 29. júlí 2008 12:44 Úr Heiðmörk MYND/ÞÖK "
Þetta voru bara bílaviðskipti sem gengu í gegn fyrir hálfu ári og ég hélt að væru búin," segir fórnarlamb Heiðmerkurhandrukkaranna svokölluðu sem sóttu hann á heimili hans upp úr miðnætti á laugardagskvöld og lömdu hann síðan sundur og saman með þeim afleiðingum að hann þarfnaðist aðhlynningar á sjúkrahúsi. Fórnarlambið, sem er 31 árs karlmaður, segist ekki hafa átt von á þessu þegar mennirnir bönkuðu upp á hjá honum á laugardagskvöldið. "Þetta er eitthvað svo súrt. Þeir sögðu ekki neitt heldur drösluðu mér upp í bíl og síðan man ég lítið eftir mér. Mér var ábyggilega hent út úr bílnum á ferð og lenti á andlitinu og hliðinni. Miðað við það hversu bólginn ég er í andlitinu þá hljóta þeir að hafa djöflast vel á því," segir fórnarlambið sem rekur þó minni til að þeir hafi potað í augun á honum. Maðurinn rankaði við sér uppi í Heiðmörk og notaði síðustu kraftana til að leita sér hjálpar. Hann komst með naumindum að Bónus í Garðabænum þar sem hann ræsti öryggiskerfi með því að kasta steini í gegnum glugga. Fljótlega á eftir kom lögreglan sem kallaði á sjúkrabíl. "Þeir tóku af mér símann þannig að ég gat ekki gert neitt annað," segir fórnarlambið. Fjölskylda hans var erlendis og þakkar hann guði fyrir að þau voru ekki heima þegar handrukkararnir bönkuðu upp á hjá honum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira