Viðræður í hnút og aðgerðar ræddar hjá ljósmæðrum 6. ágúst 2008 11:00
Kjaraviðræður Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar ríkisins eru í algjörum hnút og félagsfundur Ljósmæðrafélagsins tekur í kvöld afstöðu til hugmynda forystumanna félagsins um aðgerðir til að knýja á um launaleiðréttingu. Samningafundur var í deilu ljósmæðra og ríkisins í morgun en hann var stuttur og árangurslaus að sögn Guðlaugar Einarsdóttur, formanns Ljósmæðrafélags Íslands. Aðspurð um það á hverju strandi segir Guðlaug: „Það strandar á því að leiðrétta okkur í launatöflu ríkisins. Við höfum vilja ganga til samninga við ríkið á svipuðum nótum og BHM en við erum á kolröngum stað í töflunni miðað við önnur félög," segir Guðlaug. Ljósmæður vilji fá menntun sína metna til jafns við stéttir með sambærilegan bakgrunn. Aðspurð um framhaldið segir Guðlaug að Ljósmæðrafélagið haldi fund í kvöld þar sem ræða á hugsanlegar aðgerðir til þess að knýja á um launaleiðréttingu. „Við heyrum í félagsmönnum í kvöld og höldum svo blaðamannafund í kjölfarið þar sem niðurstaða fundarins verður kynnt," Guðlaug vill ekki tilgreina í hverju aðgerðirnar muni felast, hugmyndirnar verði fyrst kynntar fyrir félagsmönnum. Fram kom í fréttum í júlí að um hundrað ljósmæður hefðu sagt upp störfum til að knýja á um betri kjör og aðspurð segir Guðlaug að hún viti ekki betur en að þær standi. Uppsagnirnar taka gildi 1. október „og við róum lífróður til þess að reyna að afstýra því," segir Guðlaug.
Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fleiri fréttir Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Sjá meira