Ekkert við stefnu Björns varðandi Suðurnesjalögreglu að athuga 21. apríl 2008 16:27
Forsætisráðherra var á Alþingi í dag hvattur til að höggva á hnútinn í deilunni um lögregluembættið á Suðurnesjum til þess að eyða óvissu fyrir starfsmenn. Ráðherra sagði máli í vinnslu og sagði ekkert að athuga við stefnu dómsmálaráðherra í málinu. Bæði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, og Grétar Mar Jónsson, þingmaður frjálslyndra, spurðu ráðherra út í málið á þingi í dag. Vísaði Guðni til þess að hann og flokksbróðir hans, Bjarni Harðarson, hefðu staðið fyrir fundi á Suðurnesjum í síðustu viku þar sem skorað var á ráðherra að hvöggva hnútinn. Deilan um að stía í sundur lögreglu og tolli á Suðurnesjum, sem náð hefðu góðum árangri saman við að sporna við innflutningi fíkniefna, væri mjög skrítin og hana þyrfti að leysa. Benti Guðni á að annar stjórnarflokkurinn sæti með frumvarp fjármálaráðherra en ríkisstjórnin hefði samþykkt það. Ráðherra bæri að höggva á hnútinn. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði engar deilur um að það ætti að styrkja og efla löggæsluna á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar hefði verið mótuð sú stefna af hálfu dómsmálaráðherra að greina að lögreglu og toll og við þá stefnu væri ekkert að athuga. Verið væri að vinna í málinu og leiða það til lykta. Markmiðið væri að tryggja sem besta þjónustu en að það yrði gert á grundvelli eðlilegra fjárheimilda. Um raunverulegt stjórnarfrumvarp að ræða? Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði hvort í raun og veru væri um að ræða stjórnarfrumvarp þar sem annar stjórnarflokkurinn, þingflokkur Samfylkingarinnar, hefði ekki afgreitt málið. Sagði hann mikla óvissu í málinu og að það þyrfti að fá það á hreint. Forsætisráðherra svaraði því til að framgangur mála milli stjórnarflokkanna væri í föstum skorðum. Stjórnarfrumvarp þyrfti fyrst að fá samþykki í ríkisstjórn áður en það væri sent til þingflokka sem færu með gagnrýnum augum yfir málið. Það gæti tekið misjafnlega langan tíma að koma slíkum frumvörpum í gegn. Hitt væri hins vegar nýtt að verið væri að rukka menn um frumvörp sem enn væru í umfjöllun þingflokka. Nefndi hann orkumálafrumvarp iðnaðarráðherra sem dæmi en það var mun lengur í þingflokki Sjálfstæðisflokks en Samfylkingarinnar fyrr í vetur. Frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á tollalögum væri í eðlilegri meðferð.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira