Vinnutímalöggjöf gerir Iceland Express grikk Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 8. ágúst 2008 23:14
Vísi barst í kvöld hringing frá móður með þrjú börn sem beið á Akureyrarflugvelli eftir flugi Iceland Express til Kaupmannahafnar. Bilun kom upp í flugvélinni sem átti upprunalega að fara í loftið klukkan 15.30. Móðirin sem hringdi var vægast sagt ósatt með þjónustuna og upplýsingar sem hún hafði fengið og sagðist hafa hvorki fengið kaffibolla handa sér né kubba handa börnunum. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, segist harma frásögn konunnar og að svona lagað eigi ekki að gerast. „Þegar flugi seinkar fer ákveðin starfsframkvæmd í gang sem á meðal annars að stuðla að því að farþegar fái að borða." Flogið með nýja vél til Akureyrar Flugvirkja var flogið til Akureyrar og vann hann að því að laga flugvélina. Hins vegar þótti ljóst að lengri tíma þurfti í lagfæra vélina en vinnutímalöggjöf flugvirkja gera ráð fyrir að megi vinna og því varð að leita annarra ráða. Beðið var því eftir flugvél sem lenti á Keflavík í kvöld og er hún nú á leið til Akureyrar. Býst Matthías við að flugvélin fari með farþegana frá Akureyri, áleiðis til Kaupmannahafnar, um klukkan eitt í nótt. Annað flug í vandræðum sökum hjartaáfalls farþega Annað flug Iceland Express varð einnig fyrir barðinu á vinnutímalöggjöfinni en flug frá Barcelona þurfti að snúa við sökum þess að einn farþeganna fékk hjartaáfall. Vélin var komin nokkuð langt á leið og þegar komið var aftur til Barcelona mátti flugmaðurinn ekki starfa lengur samkvæmt vinnutímalöggjöf flugmanna. Því urðu allir farþegar flugvélarinnar að gista eina nótt til viðbótar í Barcelona. Matthías segist miður sín á á öllum töfunum og þeim vandkvæðum sem farþegar flugfélagsins hafi orðið fyrir. Aðstæðurnar séu samt einfaldlega þannig að ekkert sé hægt að gera til þess að koma í veg fyrir þær. „Við reynum hins vegar að bregðast við og draga úr óþægindum eins og við getum."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira