Ágreiningur um Evrópumál að koma upp á yfirborðið 16. maí 2008 14:02 Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði. MYND/Heiða „
Það sem er að koma upp á yfirborðið er sá ágreiningur sem er innan flokksins um Evrópumál. Það eru nokkrir hópar innan flokksins, hópar sem tengjast atvinnulífinu og tengjast ungliðahreyfingu fliokksins, sem vilja skoða með opnum huga mögulega inngöngu í Evrópusambandið," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um nýjustu tíðindi af Evrópumálum innan Sjálfstæðisflokksins.Fram hefur komið að varaformann flokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur greinir á við formanninn Geir H. Haarde og dómsmálaráðherra um hvert skuli stefna. Þorgerður Katrín sagði á fundi á miðvikudag að til greina kæmi að kjósa um viðræður um Evrópusambandsaðild á næsta kjörtímabili en Geir sagði í gær að ótímabært væri að ræða málin á þessum nótum. Í svipaðan streng tók Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í gær og sagði EES-samninginn vel duga Íslendingum.Hefur verið tregur til að ýta undir lifandi umræðuAðspurður um þessar vendingar segir Baldur: „Þetta var mjög athyglisverð ræða hjá Þorgerði. Það eru náttúrlega nokkur tíðindi þegar varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að henni finnist að það eigi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsmálið þó það eigi að gera það á næsta kjörtímabii. Það er líka athyglisvert að formaður og varaformaður flokksins tala með skýrum hætti um að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að vera leiðandi í þessari umræðu og ætli sér að skoða kosti og galla aðildar en flokkurinn hefur hingað til verið mjög tregur til þess að ýta undir nokkuð sem gæti skapað lifandi umræðu um Evrópumál," segir Baldur.Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti kjósenda flokksins vill sækja um aðild. Aðspurður hvort einhverjir þeirra séu að láta í sér heyra segir Baldur að atvinnurekendur innan flokksins séu hugsanlega að beita þrýstingi á einhverja innan flokksforystunnar um að skoða málið til hlítar.„Einnig gæti verið að einhver innan flokksforystunnar upplifði það að þeir séu að missa tökin á Evrópuumræðunni. Það séu aðrir stjórnarmálafokkar sem stýri umræðunni og í þeirri umræðu sé búið að ýta Sjálfstæðisflokknum til hliðar. Það er mjög skiljanlegt að forysta Sjálfstæðisflokksins vilji að einhverju marki reyna að stjórna umræðunni og taka þátt í henni frekar en að vera ýtt til hliðar og láta aðra flokka um að ræða þessi mál," segir Baldur enn fremur.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira