Innlent

Dorrit í dýrindis skautbúningi

Dorrit Moussaieff forsetafrú mun klæðast forláta skautbúningi við embættistöku forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar í dag. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofu kemur fram að búningurinn hafi verið saumaður árið 1938 af Jakobínu Thorarensen, annálaðri hannyrðakonu. Hann var saumaður á Jósefínu Helgadóttur eiginkonu Skúla Guðmundssonar fyrrum alþingmanns, ráðherra og kaupfélagsstjóra í Húnavatnssýslu.

„Jakobína baldýraði treyjuna með gullþræði sem enn er gljáandi og fallegur og er munstrið sóleyjarmunstur sem Sigurður Guðmundsson málari teiknaði. Á ermunum eru 7 hnappar úr víravirki með laufi," segir í tilkynningunni.

Þá segir að brjóstnælan sé gömul víravirkisnæla sem er gjöf frá Ólafi Ragnari til Dorritar.

„Í samfellunni (pilsinu) er listsaumur með sóleyjarmunstrinu saumað með silkiþræði. Víravirkisbeltið með sprota er smíðað af Gísla Árnasyni gullsmið frá Ísafirði (1859 - 1942). Koffrið smíðaði Þórarinn Ágúst Þorsteinsson (1859 - 1945) gullsmiður frá Ísafirði," segir einnig og því bætt við að blæjan sé í eigu Heimilisiðnaðarfélags Íslands og er hún frá um 1910. „Hún er úr bómullartjulli og er applikeruð."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×