Samið við bandarískt fyrirtæki um lagningu DANICE-strengsins 9. janúar 2008 15:55
Eignarhaldsfélagið Farice hefur samið við bandaríska fyrirtækið Tyco Telecommunications um að hanna, framleiða og leggja hinn svokallaða DANICE-ljósleiðarasæstreng frá Íslandi til Danmerkur. Fram kemur í tilkynningu frá Farice að verkinu eigi að vera lokið í lok þessa árs en með nýja sæstrengnum á að auka sambandsöryggi við útlönd verulega. Þá á stengurinn að flytja fjarskiptaumferð netþjónabúa sem áformað er að reisa hér á landi. Sæstrengurinn, sem er 2250 kílómetra langur, verður lagður frá Landeyjum til Blåbjerg á vesturströnd Danmerkur. Haft er eftir framkvæmdastjóra Farice, Guðmundi Gunnarssyni, að áætlanir séu um að reka báða sæstrengina, FARICE og DANICE, í eins konar hringkerfi. Auk þeirra tveggja tengir CANTAT-3 sæstrengurinn Ísland við útlönd en hann er nokkuð kominn til ára sinna. Í DANICE-sæstrengnum verða fjögur ljósleiðapör, sem hvert um sig getur flutt 1280 gígabit á sekúndu og því er mesta afkastageta sæstrengsins rúmlega 5000 gígabit á sekúndu. Til samanburðar má nefna að afkastageta FARICE-1 sæstrengsins er 720 gígabit á sekúndu. Fram kemur í tilkynningunni að Tyco Telecommunications sé leiðandi fyrirtæki á sviði ljósleiðarasæstrengja og hefur lagt yfir 80 sæstrengskerfi víða um heim á síðustu 50 árum. Höfuðstöðvar og verksmiðjur Tyco eru í New Jersey og New Hampshire í Bandaríkjunum. Farice ehf. fer með 80 prósent hlut Íslendinga í Farice hf., sem á og rekur FARICE-1 sæstrenginn, en Færeyingar eiga 20 prósent í þeim sæstreng. Hluthafar í Farice ehf. eru íslenska ríkið, Hitaveita Suðurnesja, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, Skipti og Og fjarskipti.
Mest lesið Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Erlent Hélt á lokuðu umslagi Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Innlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Sjá meira