Óskar vill að Orkuveitan endurskoði ákvörðun um Bitruvirkjun 29. maí 2008 13:09 Óskar Bergsson.
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði á fundi borgarráðs í dag tillögu um að Orkuveita Reykjavíkur endurskoði ákvörðun sína um að hætta við Bitruvirkjun. Tillögunni var frestað. „Ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 20. maí s.l. þar sem ákveðið var að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar og fresta öllum frekari framkvæmdum á svæðinu hefur sætt harðri gagnrýni," segir í tillögu Óskars. „Margir hafa orðið til þess að velta fyrir sér réttmæti ákvörðunarinnar sem tekin var innan sólarhrings frá því að álit Skipulagsstofnunar var kynnt." Óskar bendir meðal annars á yfirlýsingu frá Samorku þar sem því er haldið fram að Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt, samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. „Skipulagsstofnun hefur brugðist við þeirri yfirlýsingu með því að staðfesta að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að leggjast gegn eða hafna byggingu Bitruvirkjunar. Í ljósi þess að álit Skipulagsstofnunar var ekki bindandi, harðra viðbragða hagsmunaaðila, mikils áfallins kostnaðar og nýrrar hagskýrslu ASÍ um verulegan samdrátt framundan í íslensku efnahags- og atvinnulífi, samþykkir borgarráð að beina því til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að endurskoða ákvörðun sína frá 20. maí," segir í tilkynningunni. „Það eru eindregin tilmæli borgarráðs Reykjavíkur að stjórn fyrirtækisins endurskoði fyrri afstöðu sína í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið eftir að ákvörðun var tekin," segir að lokum.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira