Mellur og milljónir fyrir að hætta fíkniefnabaráttu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2008 12:11 „
Ég er búinn að vera að berjast gegn fíkniefnum í 14 ár svo ég þekki þetta allt saman og það nýjasta er að hringt var í mig og mér boðnar hundrað milljónir króna fyrir að hætta baráttunni. Þetta voru stjórnmálastrákar. Þeir eru verstir þegar kemur að fíkniefnum. Það gera peningarnir. Þetta átti að heita stuðningur en þetta er enginn stuðningur, þetta eru kaup," sagði Svavar Sigurðsson sem þekktur hefur verið undanfarin ár fyrir þjóðarátak sitt gegn fíkniefnum en hann hefur staðið fyrir útgáfu ýmissa bæklinga um fíkniefni auk þess að kaupa tæki og tól til eftirlits sem hann hefur fært löggæslustofnunum að gjöf. „Ég vissi bara hverjir þeir voru, ég þekki þetta lið þótt þeir hafi ekki hringt í mig í mörg ár. Ég talaði við þá í klukkutíma og ég þekki þessa menn vel," sagði Svavar enn fremur og var ómyrkur í máli þegar hann sneri tali sínu að mútugreiðslum til stjórnmálamanna: „Ég hef marga í stjórnmálunum sterklega grunaða um að þiggja mútur. Þetta eru oft ungu mennirnir. Þegar mafían býður peninga þá vill hún fá eitthvað fyrir sinn snúð, menn fá ekki peninga frá mafíunni nema þeir geri eitthvað fyrir hana." Fé og fögur fljóð Aðilarnir sem settu sig í samband við Svavar létu ekki þar við sitja að nefna ríkulegar fjárhæðir að hans sögn: „Svo voru gleðikonur í pakkanum líka, rússneskar og frá Lettlandi og Litháen, ég gat bara valið um," útskýrir hann. „Svo kom nú dálítil hótun. Þeir sögðust þekkja systur mína og hafa séð hana niðri í bæ ásamt móður okkar en hún dó nú 1974 svo það passar ekki. Þetta var allt svona sko. En þarna var verið að gera tilraun," sagði Svavar og kvað skýringuna einfalda - hann hefði einfaldlega náð svo miklum árangri í styrjöld sinni gegn eiturvánni. „Það eru fleirum boðnar mútur en mér. Þetta er svo víða í pólitíkinni. Einkenni stjórnmálamanna á Íslandi er hugleysi, það hef ég oft sagt," sagði Svavar og bætti því við að undirheimarnir á Íslandi teygðu sig svo víða að hann þyrði alls ekki að standa uppi í hárinu á fulltrúum þeirra væri almættið ekki með honum á vígvellinum. Mafían lafhrædd „Mafían er svo geysilega sterk hérna en þeir eru lafhræddir við mig og þora bara ekkert að tala við mig núna. Ég var að senda ríkisskattstjóra áskorun um að taka til skoðunar fjármál fíkniefnasala og mútugreiðslur. Ég hef nú sagt að 30 prósent af peningum í umferð sé vegna fíkniefna. Svo grunar mig sterklega að þetta sé komið inn í þjóðarskuldirnar líka," sagði Svavar. Hann benti máli sínu til stuðnings á aðila sem stunduðu það að kaupa ýmsar skuldir til innheimtu. Hjá Seðlabankanum hefði hann fengið þær upplýsingar að erfitt væri að fá uppgefið hverjir kaupendur skulda væru. „Og það finnst mér að ætti bara að vera ólöglegt. Ég náttúrulega er mjög óæskilegur maður í dag alls staðar þar sem ríkið er. Þeir vita alveg hvað þeir hafa gert og nú eru þeir logandi hræddir við það. Ef ég hefði ekki rekið þá af stað í hlutina væru þeir í sömu stöðu og þeir voru í þegar ég byrjaði, það er að tala sem minnst um hlutina," sagði Svavar og rifjaði upp fyrstu ár baráttu sinnar: „Ég kom átakinu af stað fjórum sinnum, fyrst með aðstoð Svavars Gests, Rannveigar Guðmundsdóttur og Ólafs G. Einarssonar. Það fór allt af stað 10. desember 1995. Svo kom fíkniefnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna sem var samþykktur á Alþingi 19. febrúar 1997, ég er fæddur þann dag 1937 svo ég fékk hann í afmælisgjöf," sagði Svavar að skilnaði.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira