Greining á krabbameini í blöðruhálskirtli markaðsett 10. febrúar 2008 18:00
Íslensk erfðagreining birti í dag vísindagein í Nature genetics þar sem tveimur áður óþekktum erfðaþáttum blöðruhálskirtilskrabbameins er lýst. Greinin er sú fjórða sem vísindamenn fyrirtækisins birta á síðustu 18 mánuðum um erfðaþætti þessa algenga krabbameins og hefur fyrirtækið þróað greiningarpróf byggt á þessari röð uppgötvana. Greiningarprófið nefnist deCODE PrCa™ og er sett á markað í dag. deCODE PrCa™ byggir á 8 erfðaþáttum blöðruhálskirtilskrabbameins sem hver um sig hefur áhrif á líkur manna á að fá sjúkdóminn. Þegar áhrif allra þessara erfðaþátta eru lögð saman í einu greiningartæki getur það nýst til þess að finna þá karlmenn sem eiga hvað mest á hættu að fá sjúkdóminn. Krabbamein í blöðruhálskirtli er eitt helsta heilbrigðisvandamál karla á Vesturlöndum. 10% karla eru í tvöfaldri meðaláhættu og 1% karlmanna þrefalt líklegri til að fá sjúkdóminn vegna þessara erfðabreytileika, þar sem tvöföld áhætta þýðir u.þ.b. 30% líkur og þreföld áhætta þýðir nálægt 50% líkur á blöðruhálskirtilskrabbameini. "Sá þáttur sem ræður mestu um horfur karlmanna sem greinast með blöðruhálskirtilskrabbamein er hversu snemma sjúkdómurinn greinist", sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og einn höfunda greinarinnar. "Skimunarpróf eins og deCODE PrCa™ ætti að auka líkurnar á því að þetta krabbamein greinist mjög snemma og valdi því minni skaða. Um leið og við bjóðum upp á klínískt greiningarpróf þar sem þeir erfðaþættir sem við höfum uppgötvað eru greindir höfum við einnig sett þessar uppgötvanir inní deCODEme, þar sem viðskiptavinir okkar geta sett sjálfa sig í samhengi við þessar nýjustu uppgötvanir í erfðafræði." Uppgötvunin sem birt er í dag byggir á greiningu erfðamengis 23 þúsund Íslendinga og voru niðurstöðurnar staðfestar með greiningu á 15 þúsund einstaklingum frá Evrópu og Bandaríkjunum. Annar breytileikinn sem fannst er á X litningi og hinn er á litningi 2 og tengist sterklegar blöðruhálskirtilskrabbameini sem er meira heldur en minna illkynja. Vísindagreinina má finna á www.nature.com/ng.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira