Góðar líkur á nýjum kjarasamningi í vikunni 10. febrúar 2008 12:28
Jákvæður tónn er í talsmönnum beggja samningsaðila á vinnumarkaðnum eftir fund í Karphúsinu síðdegis í gær og taldar góðar líkur á að skrifað verði undir nýja kjarasamninga þegar líður á vikuna. Bæði Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins hyggjast þó fyrst banka upp á hjá ríkisstjórninni til að knýja á um framlag stjórnvalda.Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, metur stöðuna eftir fundinn hjá ríkissáttasemjara í gær svo að samningar ættu að geta klárast í vikunni. Spurður um þetta í morgun sagði Sigurður Bessason, talsmaður Flóabandalagsins og formaður Eflingar, að nú væru betri líkur en verið hefðu undanfarið.Ljóst er þó að menn munu ekki skrifa undir án þess að stjórnvöld komi að málum. Verkalýðsforystan mun þrýsta á atriði eins og barnabætur, vaxtabætur og húsnæðisbætur og vinnuveitendur hafa sínar óskir til ríkisstjórnarinnar. Þeir telja það illa horfa í atvinnumálum að ríkið verði að greiða fyrir stóriðjuframkvæmdum og flýta opinberum framkvæmdum.Helsta krafa þeirra snýr þó að vaxtastefnu Seðlabankans, sem þeir telja bitna illa á atvinnulífinu. Húsnæðismál lágtekjufólks verða uppi á borðum og þá vilja atvinnurekendur fá loforð um að hið opinbera fylgi sömu kjarastefnu gagnvart sínum starfsmönnum og samið verður um á almenna vinnumarkaðnum.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira