Vík í Mýrdal er að drukkna í sandi 10. febrúar 2008 14:00
Mikill fjörusandur hefur fokið yfir Vík í Mýrdal í óveðrinu sem geisað hefur á landinu undanfarið. Heimamenn segja að þorpið sé að drukkna í sandi en flæðarmálið færist nær þorpinu með hverju árinu. Þórir N. Kjartansson, framkvæmdastjóri Víkurprjóns, hefur búið í Vík síðan 1962. Hann segir að ástandið fari versnandi með hverju árinu. ,,Það er einkum í suðvestan roki sem ástandið er verst," segir Þórir. ,,Þá veldur sandurinn skemmdum á bílum ef þeir eru ekki í skjóli og dæmi eru um að gluggar í heilu húsunum verði mattir og eyðileggist af völdum sandfoksins." Að sögn Þóris er nýtt Kötlugos hið eina sem getur bjargað Vík frá þessu vandamáli. ,,Fjaran gekk fram eftir síðasta Kötlugos en frá áttunda áratugnum hefur sjórinn stöðugt sorfið meira af henni," segir Þórir. ,,Og nú hefur sjórinn brotið sér leið í gegnum síðustu náttúrulegu vörnina sem voru uppgræddir melhólar fyrir framan þorpið." Í máli hans kemur fram byrjað sé að huga að því að búa til grjótvörn gegn ágangi sjávarins. Það sé hins vegar óhemju dýrt verkefni og ljóst að Vík hefur ekki bolmagn til að standa að slíkri framkvæmd ein og sér.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Erlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent „Klukkan tifar“ Innlent Fleiri fréttir „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Sjá meira