Samkomulag vegna Icesave og IMF fara fyrir þing 17. nóvember 2008 15:42 MYND/GVA
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að bæði viljayfirlýsing við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samningar vegna Icesave-deilunnar verði lagðir fyrir Alþingi til samþykktar. Þetta kom fram í umræðum við upphaf þingfundar í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kynnti samkomulagið sem gengið var frá í gær sem kveður á um að Íslendingar ábyrgist lágmarkstryggingar á innistæðum fólks á Icesave-reikningunum í samræmi við EES-samninginn. Sagði hún þetta eina erfiðustu milliríkjadeilu sem Íslendingar hefðu staðið í og að hún hefði staðið í vegi fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum ríkjum. Sagði hún tímann hafa unnið með okkur því hugmyndir Breta í upphafi hafi verið miklu umfangsmeiri en niðurstaðan var. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu að verið væri að gera mikla samninga án þess að umræða hefði farið fram um þá á Alþingi og það ætti einnig við um yfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Verið væri að skuldbinda þjóðina til langrar framtíðar og um það ætti að ræða áður en samið yrði. Vorum beitt ákveðnum þvingunum Geir H. Haarde sagði í svari sínu að málin yrðu rædd á Alþingi. Allir samningar um fjárskuldbindingar yrðu gerðir með fyrirvara um samþykki Alþingis. Síðar í dag yrði útbýtt þingsályktunartillögu um samstarf Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og viljayfirlýsing vegna þess yrði sem fylgiskjal með tillögunni. Tillaga ríkisstjórnarinnar væri sú að ganga til samstarfs við sjóðinn. Sagði Geir að hann sæi fyrir sér svipaða málsmeðferð varðandi Icesave og sagði hann að þau mál hefðu verið rædd við formenn stjórnarandstöðuflokkanna fyrir helgi. Íslensk stjórnvöld hefðu ekki gengið frá samningum um Icesave heldur hefði verið samið um að fara samningaleiðina. Aðrar leiðir í málinu hefðu einangrað Ísland og hefðu hugsanlega leitt til meira fjárhagstjóns en nú væri verið að lágmarka það. Samkomulagið væri forsenda þess að önnur ríki og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lánuðu okkur fé. Sagði Geir að vissulega hefðu Íslendingar verið beittir ákveðnum þvingunum í þessu máli en það væri staðan sem við þyrftum að horfast í augu við.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira